100 glæný Zebra Danio seyði.....hvað á ég nú að gera??????

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Thorleifur
Posts: 4
Joined: 23 Jul 2008, 00:38

100 glæný Zebra Danio seyði.....hvað á ég nú að gera??????

Post by Thorleifur »

Hæ.

Ég og börnin mín 2 erum búin að vera með fiska í nokkra mánuði. Ég á 2 pör af Zebra Danio fiskum sem mér er sagt að séu mjög góð eintök og ég ætti endilega að láta þá hrygna.

Nú ég fór auðvitað af stað og Googlaði "breeding Zebra Danio", fékk fínar leiðbeiningar og fór eftir þeim. Ég er með 20L búr með svampfilter og loftdælu, hitara og hitastigið er ca 27°C.

Í gær voru svo komin seyði og sem "ábyrgt foreldri" sem langar að koma afkvæmum "sínum" vel á legg langar mig að fá ráðleggingar frá þeim sem kunna að ala upp Zebra Danio seyði.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Infosoria er fín fyrstu dagana og svo fínmulið fóður eða artemía.
Það tekur reyndar nokkra daga að græa infusoriu.
Hér er skemmtilegur þráður um svipað mál http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php ... barbapabbi
Thorleifur
Posts: 4
Joined: 23 Jul 2008, 00:38

Post by Thorleifur »

Takk fyrir þessa ábendingu....þetta er skemmtilegur þráður. En hvernig geri ég Infosoria???
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það eru nokkrar aðferðir til að koma infusoriu af stað.
Ég skelli td bara fiskabúravatni í loklausa glerkrukku eða lítið fiskabúr, set gúrkubita í vatnið og jafnvel smá gróðurleifar úr fiskabúrinu og set svo krukkuna út í glugga sólarmegin. Eftir nokkra daga ætti vatnið að verða grænt og þá gefur maður hluta af því í seiðabúrið.
Sumir sjóða gúrkubitan (annað grænmeti gengur líka), sía í gegnum fínt sigti og skella svo soðinu ásamt fiskabúravatni í glerkrukkuna.
Thorleifur
Posts: 4
Joined: 23 Jul 2008, 00:38

Post by Thorleifur »

Takk fyrir þetta Vargur. Einhver benti mér á að gefa harðsoðna eggjarauðu. Ég ætla að byrja á því meðan hitt er að gerjast.

Er einhver leið að segja til um hvað ég get búist við að mikið hlutfall af seyðunum lifi?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Megnið af þeim lifir ef rétt er að farið (80-90%).. En það krefst rétts matar og góðra vatnsgæða. Og smá heppni. :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply