Pleggi?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Pleggi?

Post by Molly »

Nú er ég ekkert alveg viss um nafnið á þessum fiski, en finnst eins og þið talið um Plegga, þetta er allavega svona botn fiskur og held að hann þrýfi glerið að innan líka.


Er eitthvað sem mælir á móti því að fá sér 2 litla þannig í 95 lítra búr og með honum í búri væru Ankistur (kann ekki að skifa það), platy, molly, sverðdragari?
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

pleggar geta orðið frekar stórir. það eru reyndar til tegundir sem eru ekkert sérstaklega stórar. ancistrur er fínt fyrir þessa stærð af búri.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Pleggar verða misstórir eftir tegundum. Það eru til hundraðir tegunda. Þú ert líklega með eina af þessum algengu.
Hypostomus Plecostomus, verður 50cm.
Gibbiceps, verður 35cm.
L-001, nennti ekki að finna nafnið, verður 35cm.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Post by Molly »

Síkliðan wrote:Pleggar verða misstórir eftir tegundum. Það eru til hundraðir tegunda. Þú ert líklega með eina af þessum algengu.
Hypostomus Plecostomus, verður 50cm.
Gibbiceps, verður 35cm.
L-001, nennti ekki að finna nafnið, verður 35cm.
Ég er ekki með plegga, en langar smá í.
Já sæll, það verður allavega ekkert pláss fyrir svona stóran fisk hjá mér.
En eru þeir ekki lengi að stækka?
Gætu 2 búið hjá mér í einhvern tíma áður en þeir yrðu of stórir fyrir búrið?

En svo gæti ég nú sætt mig við einhverja aðra teg líka, sá litlar flottar dökkar ankistur með doppum á, fæ mér kannski bara þannig.
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

googlaðu bara tegundina og sjáðu hvað sú tegund verður stór :)
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Post by Molly »

EiríkurArnar wrote:googlaðu bara tegundina og sjáðu hvað sú tegund verður stór :)

Ég prufaði að Gúgla Pleggi áðan og fékk bara eitthvað sem benti á spjallið hér eða annarstaðar.
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

það er pleco
verslun.tjorvar.is er með nokkrar tegundir sem þú getur skoðað
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Post by Molly »

EiríkurArnar wrote:það er pleco
verslun.tjorvar.is er með nokkrar tegundir sem þú getur skoðað
Takk kærlega vel fyrir þetta. :)
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það eru líka til margar gullfallegar tegundir sem verða ekki það stórar,9cm, 10cm, 12cm..

ég var að fá einn, small spot pleco (L262) rosalega fallegur. Verður um 9-13cm, er ekki alveg viss.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Post by Molly »

Lindared wrote:það eru líka til margar gullfallegar tegundir sem verða ekki það stórar,9cm, 10cm, 12cm..

ég var að fá einn, small spot pleco (L262) rosalega fallegur. Verður um 9-13cm, er ekki alveg viss.
Já ok, ég er alveg móttækileg fyrir annað hvort réttum nöfnum á svona fiskum, eða linka á myndir, bara svona ef þú hefur tíma og nennir. :)
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

http://www.planetcatfish.com/catelog/nu ... &thumbs=16

listi yfir allar(?) sugur á 28 blaðsíðum
-Andri
695-4495

Image
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Post by Molly »

Andri Pogo wrote:http://www.planetcatfish.com/catelog/nu ... &thumbs=16

listi yfir allar(?) sugur á 28 blaðsíðum
Takk, takk, er líka að skoða myndir inn á vefsíðunni hjá Tjörvar.

En segið mér, hvað meiga þeir verða ca langir (mest) í 95 lítra búri, held að sundplássið sé samt bara 85 lítrar.

Gæti Bulldog Pleco S-L187

Clown Pleco S - L104

Mega Clown Peckoltia M - LDA19 (reyndar efast um að fá samþykki fyrir svona dýrum fiski, en mér finnst hann samt flottur hehe)
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Mega Clown Peckoltia - LDA19 Verður 10 cm.

Bulldog verður 12cm

clown plegginn verður 10 cm.

þessir fiskar stækka hægt þannig að þú gætir vel haft einhvern þeirra í búrinu þínu.

þeir þurfa bara að hafa rót hjá sér, (til að naga og dvelja á) og þurfa öðru hvoru að fá botntöflur.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Post by Molly »

Lindared wrote:Mega Clown Peckoltia - LDA19 Verður 10 cm.

Bulldog verður 12cm

clown plegginn verður 10 cm.

þessir fiskar stækka hægt þannig að þú gætir vel haft einhvern þeirra í búrinu þínu.

þeir þurfa bara að hafa rót hjá sér, (til að naga og dvelja á) og þurfa öðru hvoru að fá botntöflur.
Já ok, skoða þetta þá, ath með rót, eru allir svona fiskar sem þurfa rót?
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

já ég myndi telja það ráðlegt að hafa rót hjá öllum pleggum. Þeir dunda sér við að naga ræturnar og éta þær, einnig eru þær góðar sem felustaðir.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Post by Molly »

Lindared wrote:já ég myndi telja það ráðlegt að hafa rót hjá öllum pleggum. Þeir dunda sér við að naga ræturnar og éta þær, einnig eru þær góðar sem felustaðir.
Ok.

Ég sá í dýrabúðinni við Gullinbrúna, ankirstur (kann ekki að skifa það) og þær voru svona flatari en albinóarnir sem ég á og svartar með svona hvítum punktum á, það er kannski bara sniðugast fyrir mig, langar svo í svona svarta með punktum hehe.
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Albínóarnir sem að þú ert með eru líklega albino gibbar eða albino Hypostomus Plecostomus, ef að þeir eru mikið "hærri" en ankistrurnar.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Post by Molly »

Síkliðan wrote:Albínóarnir sem að þú ert með eru líklega albino gibbar eða albino Hypostomus Plecostomus, ef að þeir eru mikið "hærri" en ankistrurnar.
Þær heita albino bronze corydoras. Var að ath í búra umræðunni minni.
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Fyrirgefðu, þegar þú sagðir albínóarnir þá hélt ég að þú værir að tala um plegga.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Molly
Posts: 53
Joined: 18 Apr 2009, 23:06

Post by Molly »

Síkliðan wrote:Fyrirgefðu, þegar þú sagðir albínóarnir þá hélt ég að þú værir að tala um plegga.
Ekkert mál, sagði ankistur eða hvernig sem það er skrifað í upphafi. :)
Var Gulli Gullfiskur en er að spá í að halda þessu nikki bara.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Ancistrur (ankistrur) :wink: eða Ancistrus á ensku, tekið af gríska orðinu Angistron sem þýðir öngull/gaddar/krókur.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Post Reply