Ný með búr?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
kvikan
Posts: 5
Joined: 29 Apr 2007, 15:55

Ný með búr?

Post by kvikan »

Málið er að ég er ný með búr. Hef ekki átt fiska síðan ég var lítil og man lítið. Ég er með Cayman 40 búr 21 ltr. Málið er að það var sett nýtt vatn á föstudagskvöld og nú er það bara gruggugt er ég að gera eitthvað vitlaust með dæluna eða er mér bara ekki ætlað að eiga aftur fiska? Hvað er málið? :oops:
kvikan
Posts: 5
Joined: 29 Apr 2007, 15:55

Post by kvikan »

Eins hvernig er las um uppsetningu búrsins eitthvað um plöntur og ljósið. Ég er bara með einhverjar gerfiplöntur sem fylgdu með. Á maður að hafa alltaf ljósið kveikt eða? Nú er ég farinn að hljóma eins og ég hafi ekkert vit :?
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

ertu ekki bara að gefa of mikið af mat ?
passar að fiskarnir klári allan matinn sinn á 2-3 mín og ekkert fari til spillis. .

hvernig dæla er þetta ? ef það er svampur inn í henni og hún í sambandi við rafmagn og vatnið rennur í gegn þá er nú allt í lagi með hana myndi ég halda..

fínt að hafa ljósin kveikt í 8-10 tíma. . og alvöru plöntur gera bara gagn í búrinu fyrir utan að vera augnayndi. en eru þó ekki skylda. .

hvernig fiska ertu með og hvað marga ?
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

nýtt búr

Post by Bruni »

Þreifstu sandinn nægjanlega vel ?
kvikan
Posts: 5
Joined: 29 Apr 2007, 15:55

Post by kvikan »

Ég er með 3 gullfiska og jú þeir klára matinn. Þetta er bluecompact 2 dæla og það er hægt að stilla flæðið á vatninu. Ég er spá getur það verið of mikið eða of lítið stillt.
kvikan
Posts: 5
Joined: 29 Apr 2007, 15:55

Post by kvikan »

já vatnið var orðið alaveg fínt eftir sandþrif. Hann var vel þrifin.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Er þetta svona hvítleitt grugg ?, ef svo er þá er þetta bara bakteríur sem eru að éta næringar efni úr vatninu, þetta tekur nokkra daga fyrir þetta að hverfa

Þetta kallast oftast New tank syndrom

Meira um þetta í þessum liknum endilega að lesa yfir þetta, það hjálpa mjög mörgum að vita hvernig bakteríu flóran virkar

http://www.firsttankguide.net/cycle.php
og líka
http://www.aquahobby.com/articles/e_syndrome.php
http://fins.actwin.com/mirror/begin-cycling.html
http://www.fishforever.co.uk/cycling.html
Kv. Jökull
Dyralif.is
kvikan
Posts: 5
Joined: 29 Apr 2007, 15:55

Post by kvikan »

Málið er að eins og ég sagði er búrið búið að vera skritið síðan það var sett upp á föst. Mér var sagt að gruggugt vatn væri eðlilegt í nokkra daga. Pabbi kom í dag og honum fannst þetta ekki eiga að vera svona rosalega gruggugt. Maður getur varla séð fiskana nema þeir séu upp við glerið. EIns er eðlilegt fyrstu dagana að það sé viðbjóðsleg lykt það má varla opna til að gefa þá angar stofan. Hvað er ég að gera vitlaust ef eitthvað?
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Ég myndi byrja upp á nýtt til að útiloka öll þessu spursmál nú eða komast að því í hverju vandamálið liggur.

Hreinsa dæluna

Hreinsa sandinn

Hreinsa glerið

Hreinsa ljósið í lokinu

taka pakkann á þetta.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sammála Birki, svona mikið grugg og vond lykt er ekki eðlilegt. Ef vond lykt er þá er einfaldlega eitthvað dautt í búrinu eða svakaleg offóðrun.
100% vatnsskipti á þetta !
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Góð regla í svona litlum búrum og bara flestum búrum almennt er að gefa minna fóður en maður heldur að maður ætti að vera að gefa. Ég veit þetta hljómar heimskuleg en ótrúlegasta fólk hefur tendensíu til að gefa alltaf aðeins of mikið. Og það safnast um þegar saman kemur og þá getur komið hættulega mikið nítrat í vatnið.
Post Reply