Halló! þar sem hér er að finna helstu sérfræðinga landsins þá ákvað ég að koma hingað með nokkrar pælingar
Þannig er að ég er að vinna á selasetri íslands, (mæli með því að allir kíki hingað ;p) Það er rosa flottur garður hérna og mér datt í hug hvort að það gæti ekki verið sniðugt að setja upp svona kar með kröbbum og ígulkerjum og fleiru skemmtilegu úr sjónum. Það kannski man einhver eftir kerjunum sem voru niðrá reykjavíkurhöfn fyrir framan kolaportið? - sama pæling hér í gangi
þá eru það spruningarnar, hvað þarf til að setja upp svona? verður að vera einhver dælubúnaður eða væri nóg að hafa vatnaskipti á hverjum degi? Veit annars einhver eitthvað um þessi kör sem eru þarna fyrir framan kolaportið, ætli þau séu nokkuð notuð ennþá og skyldu þau vera föl?
Allavega ef einhver hefur einhverjar brilljant hugmyndir, endilega kasta þeim fram !
Jæja jæja jæja, miklar pæingar og hjálp vel þegin!
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli