ca. 600ltr. búr í smíðum
Moderators: Vargur, keli, Squinchy
Ok, er búinn að fá verð í glerið frá 3 stöðum: (15mm gler)
Glerborg, 80.000
Samverk, 105.000
Íspan, um 111.000
Íspan eru ekki með 15mm gler á lager og þyrftu því að sérpanta þetta.
Ég furða mig svolítið á því hvað glerborg er mikið ódýrari í þessu. Er ekki örugglega sömu gæði á glerjum frá mismunandi aðilum hérlendis?

Hef séð oft auglýst glerframleiðsla í sjónvarpinu undanfarið. Man ekki hverjir það voru sem voru að auglýsa en þeirra gler er allt 100% íslenskt. Spurning hvort munurinn liggi í því að sumir séu að flytja inn efni meðan aðrir búa það til á staðnum eða eitthvað slíkt.Ég furða mig svolítið á því hvað glerborg er mikið ódýrari í þessu. Er ekki örugglega sömu gæði á glerjum frá mismunandi aðilum hérlendis?
Annars er ég engin sérfræðingur í þessu.
Jæja, búinn að fá gler, á endanum lenti ég á 19mm gleri frá samverk, það hljómar upp á 118.000 (væntanlega gamall lager af 19mm gleri hjá þeim), sem ég kalla bara nokkuð gott miðað við að 15mm gler hefði kostað 155.000 frá íspan
Er tilbúinn að borga auka 38 þús fyrir að fá þetta í 19mm miðað við tilboðið frá glerborg. Þá get ég verið alveg viss um að þurfa ekki að brace-a búrið neitt, sérstaklega miðað við að slípað eurobrace á 15mm búr hefði getað kostað 20-25 þús aukalega ofan á 80.000 kr. tilboðið frá glerborg.
Það fer þá vonandi að styttast í að búrið líti loks dagsins ljós

Spennandi! Ég bíð spenntur eftir construction shots og svoleiðis fíneríi
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Glerið loksins komið. Get ekki verið annað en helvíti ánægður með þjónustuna hjá Samverk, þeir slípuðu meira en ég bað um, og svo grófslípuðu þeir restina þannig að það er hvergi hættuleg brún á glerinu.
þarf reyndar að breyta einu gatinu á botninum, ákvað að hafa gegnumtökin fyrir inntakið á sælunum aðeins stærra og ætla því að stækka eitt gegnumtakið úr 3/4" í 1,25"
Ætli þeri í Íspan geti borað þetta á staðnum fyrir mann ef maður mætir bara með glerið?

Bjallaðu bara í íspan..
Líst vel á þetta hjá þér annars, drífðu í að klístra þessu saman
Líst vel á þetta hjá þér annars, drífðu í að klístra þessu saman
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Afgreiðslutíminn á að fá gler borað er um vika hjá öllum fyrirtækjunum sem gera það. Ég ákvað því að kaupa mér bara flísabor og gera þetta sjálfur, hefði líka þurft að panta bíl undir glerið báðar leiðir, þannig að þetta hefði endað í nokkuð mörgum þúsundköllum. Fékk fínan bor í múrbúðinni góðu á um 4 þús.
En..... þegar ég var kominn mjög skammt á veg fipaðist ég og hallaði bornum óvar aðeins of mikið og það kvarnaðist smá upp úr glerinu sem nær rétt um 1cm út frá brúninni á gatinu, þannig að það er svona rétt tæplega að gúmmíþéttingin á gegnumtakinu nái yfir skemmdina. Hvað gera bændur? Er þetta of mikið eða kemst ég upp með þetta? Væti e.t.v. hægt að gulltryggja sig gegn leka með því að kítta alveg frá glerinu og upp eftir hliðunum á gegnumtakinu eftir að það hefur verið sett í?
Ef það virkar ekki þá er hin hliðin fín, kvarnaðist ekkert þar. Í versta falli gæti ég þá snúið botninum við, en þá þyrfti ég að hafa flæðið í búrinu öfugt sem mér hugnast ekkert allt of vel. Ég held að ég mundi þó frekar gera það en að kaupa annan botn, sem mundi sennilega kosta mig rúm 20 þús með götum og öllu.

Jæja, ég krefst mynda fyrst búrið er komið saman
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Jújú, fiskabúrið komið upp, að vísu bara að hálfu leyti, það er búið að líma það saman, en á eftir að líma lokaumferðina eftir öllum hornum, þetta er því enn nokkuð subbó.
Kann ég þeim Hlyn og Guðmundi bestu þakkir fyrir aðstoðina, eða reyndar fyrir verkið, ég reyndi svo eftir mesta megni að aðstoða þá félaga.
Animal, ég hafði glerið 19mm til að ná sem bestri límingu á milli glerjanna þar sem að það verða engar stífur ofaná búrinu. Ég hefði e.t.v. sloppið með 15mm gler, en þar sem að þetta er í stofunni hjá mér þá vildi ég vera 110% viss um að þetta mundi halda og þola svolítið hnjast, enda óvitar á heimilinu.
Svo verð ég að fara að skella mér í að smíða box utan um ljósin yfir þetta. Ég ætla þó að gefa síliconinu góðan tíma til að taka sig, á ekki eftir að setja neitt í búrið næstu 3 vikurnar hið minnsta. Enda á ég eftir að tengja dælurnar, hitarana, kolsýruna og þess háttar í skápinn, ganga frá ljósunum, verða mér út um sand í búrið og skola hann.

Þetta er ekkert smotterí.. Og vá hvað glerið er þykkt Þetta er ekki mikið þynnra en 8000 lítra búrið niðrí vinnu.
Líst vel á þetta, spennandi að sjá framhaldið.
Líst vel á þetta, spennandi að sjá framhaldið.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Búinn að kítta, nú er bara að ganga frá öllum tengingum í skápnum og fara svo að smíða kassa fyrir ljósið.
Kíttíngin gekk nokkuð vel, gleymdi þó málningarteipinu aðeins of lengi á einu horninu, en það kemur varla að sök, aftara hornið vinstra megin sem sést minnst.
Ég á reyndar eftir að skafa smá slettur og klístur hér og þar og pússa þetta svo allt með acetoni, en svona lítur límingin út í dag.
Búrið í heild, (nennti ekki að taka draslið úr því)
Svo er ég að leggja lokahönd á PVC-ið. Þarf þó að bíða eftir mini gegnumtaki að utan til að tengja koslýruna við pvc-ið.
Stefni á að setja vatn í búrið eftir 2-3 vikur.

já, þetta ætti að þola nokkurn hristing.
Ég er mjög óákveðinn með bakgrunninn, er að spá í að hafa e.t.v. bara mosa-vegg að aftan. Það væri þó best að koma bakgrunns-málum á hreint áður en ég fylli búrið..... fylling frestast þá e.t.v. til jóla miðað við hraðann á verkinu hingað til
Varðandi vatnsskiptin, þá er backflush stútur á eheim 2260 dælunni sem ég ætla að nota. Þó gæti verið að ég útbúi annan stút. Verður líka auðvelt að bæta honum við eftirá ef ég byrja á því að nota bara backflushið úr dælunni.