Ég mundi mæla með 12mm gleri hið minnsta, öryggisstuðullinn 2.5 er ekki mjög hár. Held að í verksmiðjuframleiddum búrum sé miðað við öryggisstuðulinn 3.9. Miðað við heimasmíðað búr mundi ég því mæla með öryggisstuðli hærri en 3.9
Búrið sem ég er að smíða er t.d. með stuðulinn 11, enda er það ekki með neinum stífum að ofan.
Varðandi besta verðið, þá mundi ég hafa samband við Íspan, samverk, glerborg og glerskálann. Ef þú vilt fara í 15mm gler, þá er besta verðið á því hjá glerborg, Íspan er ekki með 15mm á lager.
getur líka skoðað grein um glerþykkt hér:
http://www.fnzas.org.nz/index.php?PG=glass1
til að finna öryggisstuðul:
http://www.fnzas.org.nz/index.php?PG=glass3
Ef þú notar 15mm gler, þá nærðu stuðlinum ca.9
Þetta er reyndar ekki miðað við krossviðarbúr og því veit ég ekki hversu vel þetta á við.