Gler i Heimasmiðað bur.Hvaða þykkt

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

Gler i Heimasmiðað bur.Hvaða þykkt

Post by Einval »

hvað þarf gler að vera þykkt i Bur sem eg var hugsa um að smiða
ætla að hafa það ur 18mm krossvið með gleri a framan.það yrði um 450 ltr en 325 til 350 ltr. þegar bakgrunnur væri kominn og i hliðar lika


stærð:150 lengd
Hæð:50
dypt:60 vegna heimagerðs bakgrunns

ER EKKI NOG 12mm :?:


Hverjir eru odyrastir i glerinu :?:
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Þykkt á gleri fer aðallega eftir hæð búrsins. Ættir að sleppa með 8mm gler.

Sjá http://www.theaquatools.com/building-your-aquarium
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég mundi mæla með 12mm gleri hið minnsta, öryggisstuðullinn 2.5 er ekki mjög hár. Held að í verksmiðjuframleiddum búrum sé miðað við öryggisstuðulinn 3.9. Miðað við heimasmíðað búr mundi ég því mæla með öryggisstuðli hærri en 3.9
Búrið sem ég er að smíða er t.d. með stuðulinn 11, enda er það ekki með neinum stífum að ofan.

Varðandi besta verðið, þá mundi ég hafa samband við Íspan, samverk, glerborg og glerskálann. Ef þú vilt fara í 15mm gler, þá er besta verðið á því hjá glerborg, Íspan er ekki með 15mm á lager.

getur líka skoðað grein um glerþykkt hér:
http://www.fnzas.org.nz/index.php?PG=glass1

til að finna öryggisstuðul:
http://www.fnzas.org.nz/index.php?PG=glass3
Ef þú notar 15mm gler, þá nærðu stuðlinum ca.9
Þetta er reyndar ekki miðað við krossviðarbúr og því veit ég ekki hversu vel þetta á við.
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

fiskabur

Post by Einval »

takk fyrir upplysingarnar...eg ætla að hafa jarn ramma uppi og niðri
uppa styrkleika
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ef þú ætlar að hafa ramma þá er 10mm feykinóg og 8mm sleppur líklega en ef ekki munar miklu á verðinu þá er sennilega öruggara að taka tíuna.
Post Reply