Hvað er í gangi ef uggarnir eru tættir á guppy..? það eru bara 3 svoleiðis núna.. svo var ég líka að spá hvort þetta mundi einhverntíman lagast af því þetta er svoldið mikið.. og getur þetta drepið þá?
Eru vatnsgæðin í lagi? Eru fiskarnir að slást mikið?
Þetta vex aftur, en þetta hægir á öðrum vexti. Drepur þá ekki eitt og sér, en það getur komið bakteríusýking eða verra út frá þessu. Og ef þeir eru að slást, þá gætu þeir farið að gogga í tálknin hvor á öðrum og það er verra.
ok ég hef ekki tekið eftir að þeir séu að slást en ég skipti um 50-60% af vatninu 2 í viku.. á ég að kaupa eitthvað meðal í vatnið eða á ég að setja salt.. og ef svo er hvað þarf mikið salt í 54 L búr?
Ancisturnar gætu verið að reka guppana frá og jafnvel Sae, hægsyndir guppy með mikið slör eru auðveld fórnarlömb fyrir flesta fiska.
2-3 matskeiðar af salti í búrið og svo er bara ap vona að þetta hætti.