Okkur vantar svo fleiri fiska í búrið hjá okkur og langaði að vita hvort það væru ekki eitthverjir hérna í nágrenni við okkur með fiska semsagt fyrir austan..
Við erum með fangasíkliður í búrinu og annað gúbba búr og okkur langar að láta fleiri í búrin svo endilega látið okkur vita ef þið vitið um eitthverja hérna:)
Sammála Bruna. Fyrir austan er einfaldlega það sem er austan við mann, þá td. Hveragerði, Selfoss osf. hjá Reykvíkingum, Kópasker, Þórshöfn osf. hjá Húvíkingum osf. Þannig talar fólk yfirleitt. Landshlutinn austurland er aftur á móti austuhorn Íslands.
En nóg um það, hvaða fiskar eru það sem þú ert helst að leita eftir bonita ? Það er hugsanlega hægt að senda þér eitthvað.
En í augum Austfirðinga er asnalegt að heyra um þessa staði sem fyrir austan.. og hef ég sjálf búið á Selfossi í 1 og hálft ár..haha:D skildi aldrei þegar ég var í Rvk og var spurð hvenar ferðu svo aftur austur.. auðvita svaraði ég bara æ svona um jólin kanski.. þá var fólkið einmitt að tala um að fara á Selfoss aftur..haha:D
Svo afsakið ef ykkur fanst þetta hortugheit.
En já mér er eiginlega svona sama.. Bara eitthverja sem geta verið með Fangasíkliðum(veit ekki alveg hverjir geta verið með þeim) og svo eitthverja sem geta verið með Gubbí.. Okkur langar samt agalega í ryksugu eða botnfisk..
ég er á leiðinni á Álfjörð, Reyðarfjörð r.i.p. 12. maí. Ég get komið með fiska. Þú getur séð þá fiska sem er á söluþræðinum mínum annarstaðar á spjallinu.
haha Álfjörð.. maður tekur voða lítið eftir Álverinu þarna nema maður sé eitthvað svaka á móti því:)
En jám hvar er sá söluþráður:) ættla að skoða þá:D
Ég átti heima þarna fyrstu 18 ár lífs míns og sjá þetta ferlíki þarna í fallegum firði finnst mér afskaplega ljót sjón. Þætti það sama um samskonar mannvirki í hvaða firði sem er.
En já það finnst mér.
Burt séð frá því þá er ég til í að færa þér fiska. Um að gera að hjálpast að.
birkir ertu frá eskifirði eða reyðarfirði?? konan mín er nefnilega frá eskifirði og ég er búinn að búa þar síðustu 3 árinn og er bara nýfluttur í bæinn... svo það væri gaman að vita hvort við þekkjum þá ekki sama liðið fyrir austan
Reyðfirðingur. En ég var mikið á Eskifirði. Spilaði fótbolta þar og afi minn á heima þarna. Við erum að ræna þessum þræði!! Afsakið. En já, ef hún er 78 módel eða í kring um það þá eru líkur á að ég´þekki hana