Gróður

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Gróður

Post by Jaguarinn »

Ég var að spá í að fá mér gróður í 400l búrið mitt en hvernig gróður er best að hafa með stórum siklidum ?
:)
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Fer svolítið eftir því hvort þú viljir gera eitthvað „náttúrulegt“ útlit fyrir þína tegund af síkliðu. Ég er svolítið þannig, hef alltaf sett sverðplöntur með Amazon fiskum eins og sköllum og diskusum.

Annars finnst mér Egeria densa og Vallisneria sniðugur gróður í öll búr með mathákum sem þurfa skjól. Því þetta er þannig séð illgresi í náttúrunni sem vex hratt og fjölgar sér, og tekur þ.a.l. mikið af efnum úr jarðveginum (Egeria Densa er t.a.m. bannað að selja víðsvegar til að vernda náttúruleg vötn og ár). En það er gott í baráttunni við þörunginn. Tekur efni sem þörungur myndi annars nærast á, og heldur líka nítrat í skefjum. Svo er miklu auðveldara að halda Egeria í skefjum en þörung.

Javamosi finnst mér líka sniðugur, hann vex frekar hratt og er fallegur ef honum er vel komið fyrir. En veitir ekki mikið skjól.

Anubias er harðgerð planta sem vex nánast í hvaða búri sem er og hægt að koma fyrir á steinum eða rótum. Veitir minni fiskum skjól.

Annars er bara málið að fara á tropica.com og skoða held ég.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

risa vallisneria, java fern og anubias væri sniðugt...
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

hvernig síkliður ertu að tala um. Það skiptir miklu máli hvort þú sért að tala um mbunur, diskusa, dvergsíkliður, o.s.fv.
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

ég er að tala um Jaguar, black belt og fleira og ég er með t5 perur
:)
Post Reply