Eplasnigill í bobba

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Eplasnigill í bobba

Post by henry »

Ég er í smá vandræðum með einn eplasnigil. Hann liggur bara kyrr og hefur gert núna í nokkra daga. Hélt hann væri dauður svo ég veiddi hann upp í glas. Hann kíkti þá eitthvað út úr skelinni en fór ekkert af stað. Svo ég setti hann í búrið aftur. Núna er hann bara hreyfingarlaus á nýja staðnum.

Ætli hann sé bara að drepast?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þekki það svosem ekki.. En þeir vita þetta etv:
http://www.applesnail.net/content/vario ... isease.php
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Takk fyrir linkinn.

Eina sem ég sé í þessu skjali sem á við er að skelin á sniglunum mínum er að skemmast, verða hvít á stöðum og svona. Skvt þessu er það út af lágu pH og mjúku vatni hjá mér. Sem stafar líklega af rótinni í búrinu. Ég nenni nú varla að vera að breyta pH og hörku í vatni, alltof mikið vesen. Og diskusarnir fíla þessi skilyrði.. Er enginn annar með eplasnigla í mjúku súru vatni?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Nokkur skeljabrot , lúka af kóral- eða skeljasandi í dæluna dugar yfirleitt til að halda skelinni á sniglunum í lagi án þess að hækka pH.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Bara spurning um kalk þá?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Já, sumir mylja jafnvel kalktöflur í búrið en mér líst betur á skeljarnar.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Image

Þetta er umræddur snigill. Þarna sýnist mér Discus vera búinn að skíta á hann, en samt hreyfir hann sig ekki. Er það ekki rock bottom?
audun
Posts: 228
Joined: 24 Apr 2008, 00:57

Post by audun »

ég er með sand frá björgun sem er fullt af skeljum í samt urðu þeir svona og mjög slæmir hjá mér bara eftir viku. er reyndar líka með 3 stórar rætur
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hef nú verið í kringum þó nokkra eplasnigla og hef tekið eftir því að þeir eiga það til að liggja á botninum í einhverja daga hreyfingarlausir..svo eftir nokkra daga byrja þeir að skríða um aftur...
Og á myndinni sýnist mér þetta vera Snigla kú%ur, ekki diskusa..
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Já, hann er farinn af stað aftur. Hékk þarna sennilega í viku og fór svo af stað
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Skelin á eplasniglunum mínum var byrjuð að eyðast upp, vænntanlega af kalk skorti og setti ég þá calcium í búrið og mér virðist þeir vera að hjarna við.
Þú getur séð það sem ég nota hér á linknum fyrir neðan.
http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... rrv2okb8n4
Post Reply