Ofhitnun :(
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Ofhitnun :(
Ég bætti við 2 trúða bótíum um daginn þar sem ég var með eina einsamla fyrir. Eftir c.a. 2 vikur byrjuðu nýju bótíurnar að sýna merki um hvítblettaveiki. Þess vegna var gúgglað og leitað að upplýsingum hvað best væri að gera.
Ég byrjaði á því að salta (1g á L) í fyrradag, og fór síðan í gær og keypti hitara í búrið. Þar sem þetta er bara 30L búr þá ætlaði ég að fá mér 25W hitara, en þeir mældu frekar með 50W hitaranum í Fiskó. Þar sem búrið er svona lítið hef ég ekki þurft hitara hingað til, þar sem það hefur haldið sér nokkuð stöðugt í 24-25°. Markmiðiðað var að koma búrinu í 28° til að vinna á hvítblettaveikinni. Í búðinni var mér ráðlagt að skella hitaranum beint í 28° í stað þess að setja hann í t.d. 26° og síðan 28°.
Í dag var hitinn hinsvegar kominn í 31° og ein bótía dauð ásamt 2 neon tetrum. Ég slökkti því strax á hitaranum og slökkti ljósið í búrinu.
Hver er þumalputtareglan með svona hitara varðandi hitasveiflur. Mér finnst full mikið að hitinn skuli hafa farið í 31° þegar hitarinn er settur á 28°. Hver er ykkar reynsla?
Kv,
Ingimundur

Hitarar eru oft skakkir um 1-2 gráður, en þeir eru þó venjulega consistently skakkir, þannig að maður stillir bara 1-2 gráðum minna eða meira eins og við á. Það að hafa 25w hitara hefði líklega ekki skipt neinu máli.
Hinsvegar er 30 lítra búr allt allt allt of lítið fyrir trúðabótíur. Þær eru viðkvæmar fyrir hvítblettaveiki og þurfa mikið pláss og gott vatn sem er ekki hægt að viðhalda með góðu móti í 30 lítra búri. Þannig að það er ekki mjög undarlegt að þær geispað golunni hjá þér.

Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Þetta þarf ekki að vera hitaranum að kenna. Kannski er herbergishitinn frekar hár hjá þér fyrir, og svo hita ljósin eitthvað smá, og þá er þetta komið í 27°C. Hitarinn fer kannski aldrei í gang.diddi wrote:ég er með hitara í búrinu mínu sem er stilltur á 22° en samt er búrið í 27°
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
búrið er í forstofu og hitarinn er alltaf í gangi. minnka hitan meira í næstu vatnaskiptum.keli wrote:Þetta þarf ekki að vera hitaranum að kenna. Kannski er herbergishitinn frekar hár hjá þér fyrir, og svo hita ljósin eitthvað smá, og þá er þetta komið í 27°C. Hitarinn fer kannski aldrei í gang.diddi wrote:ég er með hitara í búrinu mínu sem er stilltur á 22° en samt er búrið í 27°
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Tekur maður þá takkann af og setur á aftur á réttum stað?Andri Pogo wrote:það þarf líka stundum að stilla hitara, það ætti að vera sýnt í leiðbeiningum, hitarinn gæti þá verið í raun stilltur á 27° en sýnir 22°.
Annars hélt ég að þessir hitarar væru ekki með thermostat, heldur bara timer sem ákveður hve oft kviknar á honum. Aldrei treyst þessum hiturum.
Nei, það er venjulega bara fjöður úr efni sem þenst mikið út eða dregst saman eftir breytilegu hitastigi og setur hitarann þannig í gang og slekkur eftir hitastigi. Ef þetta væri timer þá væru hitarar algjörlega gagnslausir nema ambient hitastig væri akkúrat rétt og stærð búrs sömuleiðis.henry wrote:Tekur maður þá takkann af og setur á aftur á réttum stað?Andri Pogo wrote:það þarf líka stundum að stilla hitara, það ætti að vera sýnt í leiðbeiningum, hitarinn gæti þá verið í raun stilltur á 27° en sýnir 22°.
Annars hélt ég að þessir hitarar væru ekki með thermostat, heldur bara timer sem ákveður hve oft kviknar á honum. Aldrei treyst þessum hiturum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Ég veit að búrið er alltof lítið til að vera með trúðabótíur, enda er stærra búr í undirbúningi sem á að vera bótíubúr með vonandi 8-12 stykkjum.keli wrote:Hinsvegar er 30 lítra búr allt allt allt of lítið fyrir trúðabótíur. Þær eru viðkvæmar fyrir hvítblettaveiki og þurfa mikið pláss og gott vatn sem er ekki hægt að viðhalda með góðu móti í 30 lítra búri. Þannig að það er ekki mjög undarlegt að þær geispað golunni hjá þér.
Hinsvegar var ég búinn að vera með eina trúðabótíu, hann Snilla, í litla búrinu í tæpt ár án vandræða, nema að hann var náttúrulega frekar einsamall og ástæðan fyrir að ég bætti tveimur við. Það var mjög gaman að sjá þegar Snilli fékk félagsskapinn
Hinsvegar virðist hvítblettaveikinn hafa náð yfirhöndinni þrátt fyrir salt, hitun og loftstein. Tvær bótíur liggja í valnum og bara Snilli eftir
Spurning hvort maður þurfi ekki að fara í lyfjagjöf til að bjarga honum, eða ætti maður að bíða sólarhring í viðbót og sjá hvað hitinn og saltið gerir?
Gleymdi einu .. hitarinn virðist halda búrinu í 28° ef ég er með hann stilltan á 24°.
-
- Posts: 771
- Joined: 13 Feb 2008, 11:21
- Location: Rvk
- Contact:
Greyið virðist vera talsvert verra en í gær, mun fleiri blettir. Fylgdist aðeins með honum í nótt þar sem hann var nokkuð mikið á ferðinni (líklega að reyna að klóra sér). Sýnist hann núna vera að tapa baráttunni við hvítblettina þar sem hann liggur núna bara á hvolfi á botninum og tekur einstaka kippiVargur wrote:Bótíur eru viðkvæmar fyrir lyfjum, ég mundi frekar bíða.
Jæja .. Þá er síðasta trúðabótían farin á vit feðra sinna og búrið orðið hálf dapurlegt.
Eini ljósi punkturinn í þessu öllu saman er innleggið í reynslubankann.
Ég gerði þau grundvallarmistök að skella öllu vatninu með úr fiskabúðinni í búrið, í stað þess að háfa fiskana uppúr pokanum. Enn betra hefði verið að eiga sóttkví, en 30 L búrið verður eflaust með það hlutverk í framtíðinni. Einnig hefði ég átt að fara eftir eigin ráðum með að stilla hitarann sem ég keypti á 26° fyrst í staðinn fyrir að keyra hann beint í 28° eins og mér var ráðlagt af starfsmanni verslunarinnar þar sem ég keypti hann (Er núna stilltur á 24° og heldur búrinu í 28°).
Síðan hefði verið fínt að finna þennan link svolítið fyrr (http://www.myschnauzer.net/ich.html), en þarna eru margir áhugaverðir punktar varðandi t.d. hita, salt (magn) og fleiri efni (og lyf) í baráttunni við hvítblettaveikina illræmdu.
T.d. setti ég 1g per líter af salti í búrið, en hefði hugsanlega átt að skella 2-3 g per líter. Einnig hefði hitastigið mátt vera í kringum 29°.

Ég vil meina að hvað sem þú hefðir gert þá hefðu þeir fengið hvítblettaveiki fljótlega aftur. Þú kannski bíður með að fá þér fleiri trúðabótíur þangað til að þú átt stærra búr.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net