Ég sat í makindum mínum áðan að horfa á sjónvarpið þegar ég sá að ljósið í stofunni dofnaði skyndilega. Ég rölti yfir og sá að annað perusettið í lokinu var slökkt. Ég prófaði að skipta um perur, en það breytti engu. Ég athugaði hvort það hefði nokkuð einhver vírinn hoppað upp úr ballestinni, en svo var ekki.
Þetta er 2*39W electrónísk ballest úr flúrlömpum, verið í notkun í tæpar 2 vikur. Hefur einhver rafmagn-gúrúinn hérna hugmynd um hvað málið gæti verið? Hin ballestin virðist í fínu lagi, þær eru tengdar í sama fjöltengi.
Er ekki ferlega ólíklegt að hún hafi brunnið yfir?
vesen með ballest.
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli