Tóma búrið mitt (myndir)

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
MaggaN
Posts: 50
Joined: 21 Jul 2009, 22:34
Location: Reykjavík

Tóma búrið mitt (myndir)

Post by MaggaN »

Jæja, hérna eru myndir af búrinu.

Bakgrunnurinn er kókostrefjamotta, gerð fyrir skriðdýrabúr.
Allar plönturnar eiga að vera frá Asíu (mest frá SA-Asíu, vona ég).
Rótin er mopani viður (ég veit nú ekki hvort það telst "authentic" fyrir Asíu-búr, en ég veit ekki hvar maður ætti að fá asískan harðvið hér).
Mölin er eiginlega of gróf, ég þyrfti að redda mér rauleitum sandi/fínni möl til að setja með.
Hauskúpan er tilbúið fiskaskraut úr Dýralandi, eini "óekta" hluturinn þarna :)

Image
Hérna er heildarmynd af búrinu, það er 60 cm langt.


Image
Hér sést kókostrefjabakgrunnurinn ágætlega.


Image
Hér sést glitta í hauskúpuna...


Image
...og hér er nærmynd af kauða :)
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

lúkkar vel 8)
User avatar
Hebbi
Posts: 115
Joined: 05 Aug 2009, 18:43
Location: Mosó
Contact:

Post by Hebbi »

flott hja þer...
hauskupan er flott svona i felum :)
this is mine..
20L
30L
páfagaukar, hundar og kettir....
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

lýst vel á þetta, hvaða fiska ætlar þú svo að hafa í þessu?
Mér finnst reyndar alltaf svolítið afrísk stemning með mopani rótum. Það eru til helvíti fínar rætur í Fiskó sem mér finnst svona Asíu-legri.
Gaman annars að sjá svona biotope verkefni.
MaggaN
Posts: 50
Joined: 21 Jul 2009, 22:34
Location: Reykjavík

Post by MaggaN »

Mig langar í betta splendens með venjulega ugga eða jafnvel einhverja aðra betta tegund, t.d. betta smaragdina eða betta imbellis. Ég veit ekki hvort ég hefði eitthvað með þeim, kannski nokkra kuhlii ála, oto eða SAE. Fallegir dverg gúramíar kæmu líka til greina.
MaggaN
Posts: 50
Joined: 21 Jul 2009, 22:34
Location: Reykjavík

Post by MaggaN »

Núna er búrið búið að rúlla í mánuð með einum gúbbífiski og allt gengur í aðalatriðum vel. Plantan í miðju búrinu, Hygrophila Salicifolia, steindrapst á nokkrum dögum, veit ekki af hverju og plantan lengst til vinstri, Ludwigia Perennis er búin að fella öll neðri blöðin og lítur núna út eins og pálmatré :/

Aðrar plöntur virðast pluma sig ágætlega og fiskurinn hefur það gott, fyrir utan að vera dálítið geðveikur vegna einmanaleika... Hann fer svo fljótlega í kennslubúrið mannsins míns, sem er náttúrufræðikennari í Rimaskóla. Þar bíða hans tvær pattaralegar kerlingar :)

Ég þyrfti eiginlega að redda mér nitrit testi einhversstaðar ódýrt og athuga hvort allt sé ekki í lagi áður en alal íbúrarnir koma á vettvang. Hvar fær maður sæmilega nákvæma nitritmæla sem ekki kosta hönd og fót?
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

Ég er líka með Ludwigia Perennis og mín er líka eins og pálmatré, hún vex vel og er búin að vera í búrinu í um tvo mánuði.
Annars æðislegt búr Magga og flott trefjamottan í bakgrunn :D
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

sammála þessi bakgrunnur er frumlegur og flottur.
MaggaN
Posts: 50
Joined: 21 Jul 2009, 22:34
Location: Reykjavík

Post by MaggaN »

Takk fyrir það, mér finnst þetta koma mjög vel út og vonandi leysist mottan ekki upp með tímanum og spillir vatninu...

Ef þetta gengur, þá er þetta frábær lausn til að losna við straum úr búrinu, þar sem dælan er höfð bakvið mottuna og súrefnisríka vatnið úr henni seytlar svo í gegnum mottuna hægt og rólega (maður sér örlitlar loftbólur streyma úr henni). Til að koma í veg fyrir að dælan róteri bara vatninu sem er á bakvið mottuna, þá kom ég því þannig fyrir að inntakið á dælunni vísar út í búrið en ekki inn í heimatilbúna bakhólfið. Í Bakhólfinu er ég með dálítið af bio-chem stjörnum frá Rena, til að fá meiri og öflugri bakteríuflóru í búrið.

So far so good, alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt :wink:
Post Reply