Eins og sumir vita þá er ég að reyna að finna stærra búr fyrir háfana mína.. Málið er að þeir eru í búri í forstofunni hjá mömmu og pabba, svo það eru frekar miklar kröfur um að búrið líti vel út (á meðan ég er skítblönk)
Svo það gæti s.s. tekið smá tíma að finna annað búr, ég er bara að spá hversu nauðsynlegt er að koma þeim yfir í stærra búr.. Búrið er 160l og ég er með 2x háfa, 3 skala, 3 yoyo bótíur og 1 trúðabótíu (held ég amk, trúðabótían er nánast alveg hætt að láta sjá sig).
Ég set inn mynd sem sýnir stærðina á háfunum mjög vel. Búrið er 100cm langt svona til viðmiðunar
Geta þeir verið í þessu búri í 1-2 mánuði í viðbót?
Of lítið búr...
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Þeir eru oftast rólegir, en stundum taka þeir æðisköst og synda útum allt og utan í allt. Sá stærri fékk sár á "nebbann" út af æsingnum í sér um daginn, en sárið er nánast alveg farið núna. Það er reyndar aðeins búið að auka plássið núna með að taka risa plast"stein" úr búrinu sem tók alveg hellings pláss.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
hvað ertu annars að spá í stóru búri?
sá að þú ert að auglýsa eftir ~300L búri en ég held að það verði ekki langtíma lausn. Ef þú ætlar að stækka við þig fyrir þá myndi ég reyna að fá amk 400L.
Ég er með einn sömu tegundar sem er 30cm.
Þegar ég var að færa stóra búrið skellti ég honum í 300L búr í 1-2klst og mér fannst það ansi þröngt fyrir svona mikinn sundfisk. Ég hefði amk líklega ekki viljað hafa hann í því til frambúðar.

Já ókei... Gott að vita af því.. hef augun opin fyrir stærri búrum Svo á ég örugglega eftir að fá hugmyndir frá ykkur um hvaða fiskar passa með í stóra búrið..
Ég ætlaði að "fylla upp í" þetta búr um daginn, því mér fannst ekki líta nógu vel út að hafa bara 5 meðalstóra fiska og ekkert annað, svo ég keypti mér 10x neon tetrur. Það leit ekkert smá vel út og ég dáðist að búrinu í góðan tíma.. Svo morguninn eftir voru bara 2 eftir :S Þeir hafa greinilega verið allir étnir um nóttina. En ég veit núna að það var frekar heimskuleg hugmynd að bæta svona litlum fiskum með 3 skölum, 2 háfum og 4 bótíum..

- Agnes Helga
- Posts: 1580
- Joined: 18 Nov 2006, 14:05