Íslenskar vatnaflær

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
MaggaN
Posts: 50
Joined: 21 Jul 2009, 22:34
Location: Reykjavík

Íslenskar vatnaflær

Post by MaggaN »

Hefur einhver af gúrúunum hér reynslu af því að veiða, rækta og gefa íslenskar vatnaflær eða önnur krabbadýr?

Ég er að hugsa um að fá mér Bettur og þær eru fyrst og fremst smádýraætur svo ég fór að lesa mér til um smádýraeldi (t.d. Daphnia, artemia, grindal worms). Svo datt mér í hug að kannski gæti maður bara náð sér í einhver kvikindi í næsta vatn. Það er greinilega fullt af þeim, bæði í Rauðavatni og Urriðavatni, þó þeim sé farið að fækka aðeins á þessum árstíma. Mest er um Gárafló (Alonella Nala) og Augndýli (Cyclops). Eru Cyclops ekki seldir sem frosið fóður í dýrabúðum? Það er alveg hægt að moka þeim upp í þessum vötnum allt sumarið, samkvæmt þessum rannsóknum sem ég fann á netinu:

http://urridaholt.is/files/pdf/Grunnran ... avatns.pdf

http://www.natkop.is/photos/Raudavatn-3-06.pdf

Hefur einhver prófað?
User avatar
Cundalini
Posts: 329
Joined: 28 Jul 2008, 22:52
Location: Hfj

Post by Cundalini »

Ég gaf fiskunum mínum stundum marflær í den, þeir voru brjálaðir í þær.
ég var með laufblaðafisk, sem að fékkst bara til að éta marflær og eða smáfiska.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Hérna 1nu sinni fórum við og veiddum Dapníu í mógröfunum í Gbæ. en þær eru horfnar núna undir byggð (að mestu????). það er líka Dapnía og allskonar svif o.þ.h. í Bakkatjörn út á nesi. Svo má örugglega kanna önnur vötn í nágr. Rvík.
Ace Ventura Islandicus
Post Reply