Skýjað
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Skýjað
Ég var að setja upp 160 lítra búr fyrir tveimur dögum síðan og setti í það aquatan og nitrivec. Það er svosem ekki frásögufærandi nema fyrir þær sakir að búrið er búið að vera skýjað í núna tvo daga (og er nær ekkert að minka), það vara talað um að þetta gæti verið svona í 4-24 tíma eftir nitrivec en ekki tvo daga. Er þetta eðlilegt? eða er ég bara óþolinmóður? endilega koma með komment um þetta og hvernig ég gæti þá unnið á þessu.
Settiru nokkuð alla flöskuna í einu? Annars hefðiru betur sleppt þessu miðað við mína reynslu. Mér fannst, og það er staðfest af greinum sem ég hef lesið, að nitrivec og svipaðar vörur geti lengt þann tíma sem búr er að ná fullu jafnvægi. Langbest að fiskarnir sjái bara um að koma þessu í gang. Því þessar bakteríur drepast bara ef þær hafa ekki nóg að bíta og brenna.
það er lang fallegast að vera með lifandi plöntur og þær hjálpa líka tilPorto wrote:Ég skolaði sandi MJÖG vel og það kom enginn litur á vatnið þegar að ég setti það í búrið. Það var ekki fyrr en ég setti Nitrivec í búrið (3-4 klst eftir) sem að búrið varð skýjað og hefur verið það síðan. Ég er ekki með rót í búrinu, bara steina, gerviplöntu, möl í botninum og skeljar.
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
180L
54 L
Nei ég gekk nú ekki svo langt að setja alla flöskunna :p, setti meira að segja minna en ég átti að gera samkvæmt leiðbeiningunum (ætlaði bara að prófa þetta, eftir að hafa heyrt góðar reynslusögur frá öðrum). Það er hinsvegar ekkert gaman af skýjuðu búri og sú trú sem ég hefði á Nitrivec er alveg horfin. Geri örugglega bara stór vatnaskipti. Þegar að ég var að byrja þá var ég í miklum vandræðum með að ná stöðugleika í búrið og þá hjálpaði aquatan mér mikið.
Stefnan var sett á lifandi plöntur en eftir að hafa lesið um afrískar síkliður að þær grafi mikið og ættu að til að skemma rætur á lifandi plöntum þá tók ég þá ákvörðun að setja frekar gerviplöntur. Sé til í framtíðinni hvort ég set alvöru ef síkliðurnar láta þær í friði

Nitrivek á að hjálpa flórunni að komast í gang, myndi leyfa þessu að vera þar sem þetta eru micro bakteríur sem hafa fjölgað sér í svo miklu magni að þær ná að hafa sjáanleg áhrif á vatnið (Hvítt eins og smá mjólk sé í vatninu), eftir viku eiga þær að hafa klárað öll næringarefni í vatninu og drepast síðan sem myndar fæði fyrir "Góðu bakteríurnar"
Þetta hefur engin áhrif á fiskana og er bara til góðs, vatnskipti gera ekkert annað en að skaffa meiri næringarefni
Þetta hefur engin áhrif á fiskana og er bara til góðs, vatnskipti gera ekkert annað en að skaffa meiri næringarefni
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Gætir haft risa vallisneriur og jafnvel anubias. Bara haft vallisneriuna þannig að fiskarnir komast ekki að rótunum, sett steina fyrir þar sem þú gróðursetur hana. Vargurinn var með glæsilegt búr með afríkusíklíðum og hafði fullt af risavallisneriu með, kom virkilega vel út.Porto wrote: Stefnan var sett á lifandi plöntur en eftir að hafa lesið um afrískar síkliður að þær grafi mikið og ættu að til að skemma rætur á lifandi plöntum þá tók ég þá ákvörðun að setja frekar gerviplöntur. Sé til í framtíðinni hvort ég set alvöru ef síkliðurnar láta þær í friði
getur séð myndir af búrunum hans hérna http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=450&start=0
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Squinchy...Takk fyrir ráðleggingarnar leyfi þessu þá bara að vera svona. Var farinn að halda að ég hefði verið að gera eitthvað vitlaust en þetta er þá líklega bara eðlilegt. Þetta er líka byrjað að dofna svolítið finnst mér núna á þriðja degi
Lindared...Já okey vissi það ekki, væri mjög gaman að hafa lifandi plöntu líka það er rétt. En nú hef ég aldrei verið með lifandi plöntu í búri, þarf einhverja sérstaka möl, töflu,bæti vökva eða eitthvað í búrið til að hún dafni?...Annars bara takk fyrir ráðleggingarnar sem voru mjög hjálplegar

Hérna er góð planta í flest búr
festir hana á steina og hún sér um sig sjálf
http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/fis ... _grein.htm
festir hana á steina og hún sér um sig sjálf
http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/fis ... _grein.htm
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða