Innanhúss tjörn
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Innanhúss tjörn
Ætla að setja upp innanhúss tjörn á næstunni.
Hugsunin er sú að smíða grind og skella svo dúk ofan í, festa og svo framvegis.
En ég er í smá vandræðum með það hvernig ég á að skrúfa saman botn "rammann" í grindinni.
Mér datt í hug að einhver handlaginn maður gæti sagt mér hvernig ég ætti að gera þetta?
Á myndinni sjáið þið hvernig þetta mætist í horninu, hvernig er þetta fest saman ef það þá þarf yfir höfuð, hér að neðan er mynd af því hvernig grindin verður sett upp nokkurn vegin, en þessi teikning er ekki kláruð, þið sjáið samt hugsunina í þessu væntanlega.

400L Ameríkusíkliður o.fl.
Þú verður að klæða tjörnina að innan með krossvið áður en þú setur dúkinn.
Dúkurinn er ágætis pæling uppá að hafa þetta einfalt, losnar við höfuðverkinn að þétta samskeyti og rakavandamál sem þú myndir lenda í með epoxy. En dúkurinn gerir það líka allar gluggapælingar erfiðari.
Hvað ertu annars að tala um með "botn"? Er þetta ekki steypugólf? Geturðu ekki bara lagt dúkinn á gólfið, hugsanlega með eitthvað mjúkt undirlag (gamalt teppi t.d.) Svo bara festa grindina saman með vinklum

Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Krossviðurinn þarf svosem ekkert að vera mega þykkur, en það fer bara eftir því hvað er langt á milli spýtnanna sem halda við hann. Ég myndi halda að 1-1.5cm myndi duga miðað við hvað það er stutt á milli spýtnanna á myndinni.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Verður eitthvað sem veitir stuðinin á móti álaginu frá vatninu, ef þú skilur?
Eða verða bara vinklar á bitana og boraðir niður í spýtuna sem fer á gólfið. Ég mundi halda að það þyrfti eitthvað til að styðja nokkuð vel við bitana sem væri þá fest við gólfið að framan til að veita nógu góðan stuðning á móti álaginu frá vatninu.
Skil e.t.v. ekki nógu vel planið hjá þér, væri gaman að sjá nákvæmari teikningar hvernig allar festingar yrðu.

ætlarðu að búa þarna þar til skóla líkur ? og vinna þá á Akureyri á sumrin ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
Uppgufun gæti orðið svolítið mikið vandamál eins og Henry bendir á. Uppgufunin úr búrinu hjá mér sem er mun minna að flatarmáli (200 * 50cm ca.) er á milli 10 og 15 lítrar á dag. Þú getur þá ýmindað þér hver uppgufunin verðu hjá þér Miðað við yfirborðið gæti hún orðið allt að 6 sinnum meiri, 60-90 lítrar. Þá verður loftið hjá þér orðið nokkuð vel mettað af raka. Hvað er herbergið annars stórt sem þetta á að vera í?
Eina almennilega lausnin við raka í svona innitjörnum er að vera með lok. Vifta dugir líklega ekki og kælir auðvitað mjög mikið, og afrakatæki eru orðin ansi stór og dýr þegar þau þurfa að afkasta svona miklu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Munt þú eiga íbúðina eða einhver sem þú þekkir eða bara leigja? svona uppá ef þetta fer allt úr böndunum og þú endir í sundlaug einn daginn Myndi svoleiðis aldrei treysta mér í svona í leiguíbúð þar sem maður á ekki neitt í því og örugglega ekki gaman að feisa leigusalann með alla íbúðina á floti og svo kannski rakaskemmdir vegna uppgufuna :O Myndi hugsa vel um þetta allavega, finnst þetta frekar ótraust miðað við vatnsmagnið sem á að vera í þessu.Síkliðan wrote:Haha, já. Ég fer í Menntaskólann á Akureyri og fæ litla íbúð fyrir sjálfan mig þar, þetta verður þar.
200L Green terror búr
Myndi nú bara byrja á því að fá það á hreint hvort gólfið þoli 4 tonn af vatni
Hvernig fiska ætlar þú að hafa í þessu ?
Hvernig fiska ætlar þú að hafa í þessu ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is