Ætla að setja upp innanhúss tjörn á næstunni.
Hugsunin er sú að smíða grind og skella svo dúk ofan í, festa og svo framvegis.
En ég er í smá vandræðum með það hvernig ég á að skrúfa saman botn "rammann" í grindinni.
Mér datt í hug að einhver handlaginn maður gæti sagt mér hvernig ég ætti að gera þetta?
Á myndinni sjáið þið hvernig þetta mætist í horninu, hvernig er þetta fest saman ef það þá þarf yfir höfuð, hér að neðan er mynd af því hvernig grindin verður sett upp nokkurn vegin, en þessi teikning er ekki kláruð, þið sjáið samt hugsunina í þessu væntanlega.
Af hverju ekki bara vatnsþétta þetta með epoxy að innan? Þá getur þú líka haft nokkra glugga á þessu ef þú vilt.
Ég er því miður ekki maðurinn til að koma með lausnir varðandi að þetta hangi saman, en þú verður að vera duglegur að update-a okkur þegar þetta verkefni fer í gang.
Þú verður að klæða tjörnina að innan með krossvið áður en þú setur dúkinn.
Dúkurinn er ágætis pæling uppá að hafa þetta einfalt, losnar við höfuðverkinn að þétta samskeyti og rakavandamál sem þú myndir lenda í með epoxy. En dúkurinn gerir það líka allar gluggapælingar erfiðari.
Hvað ertu annars að tala um með "botn"? Er þetta ekki steypugólf? Geturðu ekki bara lagt dúkinn á gólfið, hugsanlega með eitthvað mjúkt undirlag (gamalt teppi t.d.) Svo bara festa grindina saman með vinklum
Jú, ég ætla að klæða þetta að innan með krossvið, upp á dúkinn og líka að utan upp á lúkkið. Jú, það verður steypugólf. Ég nota bara vínkla.
Hvað ættu krossviðsplöturnar að vera þykkar? 1.5cm?
Krossviðurinn þarf svosem ekkert að vera mega þykkur, en það fer bara eftir því hvað er langt á milli spýtnanna sem halda við hann. Ég myndi halda að 1-1.5cm myndi duga miðað við hvað það er stutt á milli spýtnanna á myndinni.
Verður eitthvað sem veitir stuðinin á móti álaginu frá vatninu, ef þú skilur?
Eða verða bara vinklar á bitana og boraðir niður í spýtuna sem fer á gólfið. Ég mundi halda að það þyrfti eitthvað til að styðja nokkuð vel við bitana sem væri þá fest við gólfið að framan til að veita nógu góðan stuðning á móti álaginu frá vatninu.
Skil e.t.v. ekki nógu vel planið hjá þér, væri gaman að sjá nákvæmari teikningar hvernig allar festingar yrðu.
Uppgufun gæti orðið svolítið mikið vandamál eins og Henry bendir á. Uppgufunin úr búrinu hjá mér sem er mun minna að flatarmáli (200 * 50cm ca.) er á milli 10 og 15 lítrar á dag. Þú getur þá ýmindað þér hver uppgufunin verðu hjá þér Miðað við yfirborðið gæti hún orðið allt að 6 sinnum meiri, 60-90 lítrar. Þá verður loftið hjá þér orðið nokkuð vel mettað af raka. Hvað er herbergið annars stórt sem þetta á að vera í?
Eina almennilega lausnin við raka í svona innitjörnum er að vera með lok. Vifta dugir líklega ekki og kælir auðvitað mjög mikið, og afrakatæki eru orðin ansi stór og dýr þegar þau þurfa að afkasta svona miklu.
Alveg spurning hvað það verður mikil uppgufun. Verður sennilega ekki í beinu hlutfalli við búrið þitt, Sven, því hann verður væntanlega ekki með flúrperur yfir þessu. En mér finnst þetta samt varasamt, því of mikill raki getur verið heilsuspillandi.
Skarplega athugað Henry, en annars er ég sammála, það þarf að fara mjög vel yfir þetta plan áður en þú byrjar á því. Ég leyfi mér líka að setja stór spurningamerki við burðarþolið á svona boxi, þrýstingurinn frá vatninu á eftir að verða mikill.
Síkliðan wrote:Haha, já. Ég fer í Menntaskólann á Akureyri og fæ litla íbúð fyrir sjálfan mig þar, þetta verður þar.
Munt þú eiga íbúðina eða einhver sem þú þekkir eða bara leigja? svona uppá ef þetta fer allt úr böndunum og þú endir í sundlaug einn daginn Myndi svoleiðis aldrei treysta mér í svona í leiguíbúð þar sem maður á ekki neitt í því og örugglega ekki gaman að feisa leigusalann með alla íbúðina á floti og svo kannski rakaskemmdir vegna uppgufuna :O Myndi hugsa vel um þetta allavega, finnst þetta frekar ótraust miðað við vatnsmagnið sem á að vera í þessu.