Ég er með eheim aquaball dælu í 160 lítra búrinu mínu með afrískum síkliðum. Þessi spurning hljómar kannski asnalega en á ég að hafa hana alltaf á fullum krafti Þetta eru mest ungfiskar og þeir eru ekkert að koma neitt mikið upp að yfirborðinu til að borða og var ég að velta því fyrir mér hvort kraftinum úr dælunni væri um að kenna.
ætti ekki að skifta máli ég er með malawi ungfiska í 85 lítra búri með 600 lítra dælu og þeir fíla það vel og koma upp á yfirborðið og borða, eru þeir ekki bara enn feimnir þar sem það er stutt síðan þú startaðir búrinu.