Nýja 20 Lítra Arc Tank.
Er með 3 plöntur: Anubias og Cryptocoryne parva.
8 stikki af Crystal Red" rækjur.
og rót sem ég fann í skóginum, grjót og svartur sandur og málaður backgrunnur, dökk blár.
Svo er ég að hugsa um að setja kannski 2-3 snígla en veitt bara ekkert um snígla einhverjar hugmyndir?
Last edited by M.Logi on 12 Jun 2010, 20:40, edited 7 times in total.
Var rótin dauð? Eða fersk?
Ég gef rækjunum mínum sérstakt rækjufóður en annars skiptir það litlu máli, bara gefa þeim eitthvað sem sekkur og passa að gefa ekki mikið.
Svo bara byrja á einhverjum einföldum plöntum og sjá hvað þér finnst fallegt.
það verður að passa að gefa ekki rækjum of mikið að borða, þær gætu drepist. Jafnvel gefa bara á 2ja daga fresti, leyfa þeim að hreinsa sig að innan, inn á milli, fattaru. Þær finna alltaf eitthvað; þörung og "ham" af öðrum rækjum, sem þær narta oft í. Fín regla að gefa þeim eitthvað að borða sem þær klára á ekki meira en 2-3 tímum.
Gætir sett java mosa, anubias, java fern...
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
helv... er gaman af þessum litlu nano búrum.
ég fæ fleyri rækjur í vikunni Caridina sp "blue" og er að hugsa um snigla hvernig snigla ætti maður að fá sér?
Svo þarf ég að fá mér meiri gróður eitthvað á rótina og aftast í búrið.
spurning með sniglana, þar sem þeir éta mikið af þörung sem myndast sem er einnig matur fyrir rækjurnar og ef þú gefur rækjunum mat þá fara sniglarnir beinustu leið í matinn og éta hann. Sem þýðir minna fyrir rækjurnar. Þær þurfa ekki mikið en samt.. Persónulega er ég ekki hrifin af sniglum, t.d eplasniglum í rækjubúr. Þeir líka skíta eins og þeim sé borgað fyrir það.
Jamm! Nú er búrið alveg búið að breytast fleyri plöntur og ný rót og rækjur.
Ég næ bara aldrei að taka góðar myndir af þessum blessuðu rækjum alltaf úr fókus og lélegar.
En læt hér samt nokkrar myndir fylgja:
jú, enda er ísland (mývatn) og japan held ég einu staðirnir sem þessar kúlur verða til. fást stundum í gæludýrabúðum. Örugglega flott að hafa botninn þakinn af þessum kúlum í svona 130L búri, fínasti felustaður fyrir seiði.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Lindared wrote:jú, enda er ísland (mývatn) og japan held ég einu staðirnir sem þessar kúlur verða til. fást stundum í gæludýrabúðum. Örugglega flott að hafa botninn þakinn af þessum kúlum í svona 130L búri, fínasti felustaður fyrir seiði.
Þetta er ekki sama tegund og er í Mývatni og Japan
þótt við köllum þetta líka kúluskít
Lindared wrote:jú, enda er ísland (mývatn) og japan held ég einu staðirnir sem þessar kúlur verða til. fást stundum í gæludýrabúðum. Örugglega flott að hafa botninn þakinn af þessum kúlum í svona 130L búri, fínasti felustaður fyrir seiði.
Kúluskítur finnst líka í Eistlandi. En ég er hissa að rækjurnar snerti hann ekki.

Kúluskítur finnst líka í fjárhúsum
leifum nú M.loga að eiga þráðinn
og ræðum um búrið hans og þessar flottu rækjur
Ég er löngu búinn að breyta þessu búri er nú með einn flottann Betta
hér er mynd og ég setti búrið á skrifborðið þægilegt að horfa á hann synda um þegar maður er að vesnast í tölvunni