veikur gúbbý fiskur

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

veikur gúbbý fiskur

Post by Hrafnhildur »

ég er með gúbbý kerlingu sem er komin með svona rauðar rákir, er svona hálfgegnsæ fyrir utan lit í sporði.
Hún hefur hagað sér skringilega undanfarna tvo daga, húkt upp í horni og svo tók ég eftir þessu áðan.
Kannist þið eitthvað við þetta?
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

ojæja fiskurinn drapst. Ég hinsvegar hringdi í dýrabúð og þar var mér sagt að þetta væri ormur, gæti það passað?
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Það er alltaf hægt að giska eitthvað eins og þessi dýrabúð hefur gért
en það þyrfti að kryfja fiskinn til að reyna að finna út hvað var að
aðalástæða fyrir því að fiskar veikjast er léleg vatnsgæði og þess vegna er best að fyrirbyggja að það komi fyrir með reglulegur vatnsskiftum

hvar voru þessar rauðu rákir ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

þær voru bara útum allt, virtist vera innvortis. Ég vinn sjálf í dýrabúð og hef séð marga fiskasjúkdóma, en ekki þennan. Ég taldi bara að dýrabúðin sem ég hringdi í væri nokkuð sérhæfð í fiskum og þar af leiðandi með þekkingu í fiskasjúkdómum.
Vatnsgæðin ættu að vera fín, þeim líður allaveganna nógu vel til að geta fjölgað sér eins og bavíanar :)
Ég er reyndar nokkuð dugleg við að bæta við plöntum, þessi aðili sem ég talaði við í þessari dýrabúð minntist á að þessir ormar gætu komið með plöntum og fiskum.
Þetta er fyrsti fiskurinn sem drepst í þessu búri, svolítið svekkelsi, myndi bara helst vilja komast að hvað þetta var sem drap hann, upp á það ef þetta smitar út frá sér :)
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Þekking og ekki þekking
Sérmenntaðir læknar vita varla hvað er að manni þrátt fyrir langt nám þegar maður kíkir á læknavakt þá giska þeir oftast

einu sinni spurði ég yfirdýraæknir fisksjúkdóma hvað væri að fiskum hjá mér og hann sagði að hann hefði ekki hugmynd um það fyrr en hann ræktaði sýni af fisknum hann vildi ekki giska út í bláinn því margir sjúkdómar eru svipaðir
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

það er nefnilega málið, ef maður er ekki viss þá á maður að segja það.
Betra að viðurkenna að maður sé ekki viss eða hreinlega viti það ekki, heldur en að dreifa upplýsingum sem eru kannski ekki réttar :)

en veit enginn hvað gæti hafa verið að fiskinum?
Post Reply