Smá ráðleggingar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Spudi
Posts: 11
Joined: 23 Mar 2009, 11:42

Smá ráðleggingar

Post by Spudi »

Ég var að fá 300 litra notað búr fyrir 3 vikum og með því kom 14 gullfiskar, tvær glersugur og einhverjir sniglar. Held að það sé um 12 ár síðan ég var síðast með fiskabúr og vantar smá upprifun.Hvað finnst ykkur ég þurfa að skipta oft um vant og er ekki talað um 30 til 40% skipti. Um helgina dó einn gullfiskurinn, hann var ekkert byrjaður að synda á hvolfi en var slappur í hálfan dag áður. Hvað dettur ykkur í hug?
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

ég vatna mín búr einu sinni í viku og tek þá 30-40 prósent af vatninu.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ég tek alveg 50-70% á eins til eins og hálfsvikna fresti.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Maris
Posts: 27
Joined: 15 Oct 2009, 00:29
Location: Kópavogur

Post by Maris »

Talandi um vatnaskipti, ein ný hérna í faginu líka og fæ kannski að troðast inn í þráðinn með vatnaspurningar:

-Látið þið nýja vatnið ekkert standa í td. sólarhring áður en það er sett í fiskabúrið?
-Ef þið eruð að skipta 50-70% vatni út, eruð þið að setja kalt vatn beint úr krananum í búrið?
-Má nota volgt vatn ( heitt&kalt) út í fiskabúrið? Skaðar það ekkert fiskana?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

volgt vatn beint úr krananum í búrið, í góðu lagi.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Maris
Posts: 27
Joined: 15 Oct 2009, 00:29
Location: Kópavogur

Post by Maris »

Andri Pogo wrote:volgt vatn beint úr krananum í búrið, í góðu lagi.
Takk takk, gott að vita. Þetta mun minka vatmaskiptaundirbúninginn til muna :D
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

passa bara að hitastigið sé sem næst því sem það er í búrinu. +/- 1-2 gráður er í lagi en ekki mikið meira en það.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply