Hæhæ
Mig minnir að ég hafi lesið einhverstaðar að það versta sem þú gerir við fiska er að setja þá í svona glæra kúluskál. Er það satt? Að þeir verði geðveikir eða ehv af því ?
Plis , svara sem fyrst , með fyrirfram þökkum
mér finnst allavega kúlubúr vera alveg off. Þær eru yfirleitt litlar 5-15L kannski. Vatnið mengast á skömmum tíma og yfirleitt er ekki hægt að setja hreinsidælu í búrin né hitara.
Fiskarnir hafa lítið sundpláss og drepast fyrir aldur fram. Mæli einfaldlega með ferhyrndum búrum.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Ég mundi nú ekki segja að kúlubúr gerðu fiska geðveika. Þau eru bara allt of lítið, mundi ekki muna neinu hvort þú mundir setja fisk í 5L kúlubúr eða 5L ferhyrnt búr. Ef að þú ert að hugsa um að fá þér búr þá mundi ég mæla með um 20L-50L ferhyrndu búri.