HELVÍ#$% FOKKING FOKK!!!
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
HELVÍ#$% FOKKING FOKK!!!
Núna hef ég sennilega drepið fínu, nýju, sérpöntuðu fiskana mína af einskærum aulaskap
Ég fékk þá á mánudaginn og þeir hafa verið ansi stressaðir, enda eru Betta Smaragdina þekktir fyrir að vera dálítið stressaðar týpur. Þeir fengu því vott af white spot, ekkert skrítið við það svosem. Ég gerði lítil vatnaskipti, saltaði hjá þeim og hækkaði hitann upp í 27°C . Þetta hefði vafalaust virkað fínt ef ég hefði ekki GLEYMT AÐ SETJA HITARANN AFTUR Í SAMBAND!!!! ÉG kíkti á þá í morgun og varð hissa að sjá að þeir voru orðnir slappari og hvítu blettunum hafði frekar fjölgað en hitt... þá rak ég augun í hitamælinn sem sýndi rétt rúmar 20°C og fékk all svakalegan aulahroll.
Er eitthvað sem ég get gert til að hjálpa þeim? Ég setti hitarann að sjálfsögðu í samband og vatnið er að hitna hægt og rólega, komið upp í 23°C núna.
Ég setti 4 teskeiðar af fínu salti í búrið í gær, það eru ca. 45 ltr af vatni í búrinu. Ætti ég að salta meira? Núna liggur hængurinn á botninum og ég finn alls ekki hrygnuna (það eru margir felustaðir í búrinu). Það eru svona 10-15 blettir á honum og hann virkar ansi slappur en er dökkur á litinn, s.s. ekki með "stresslitina" sína... Ég bauð honum blóðorma en hann át ekki.
Hvílíkur argasti klaufaskapur

- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
og það er líka mælt með því að setja það beint út í búrið og láta það leysast hægt upp þar (gróft kötlusalt leysist hægt upp í vatni), frekar en að leysa það upp sjálfur og hella upplausninni beint í búrið.
Myndi bara bíða og sjá hvernig fiskunum heilsast, of mikið stúss í kringum búrið gerir þá bara enn stressaðri. Hafa jafnvel slökkt hjá þeim eða litla birtu.
Vonandi hressast þeir.
Myndi bara bíða og sjá hvernig fiskunum heilsast, of mikið stúss í kringum búrið gerir þá bara enn stressaðri. Hafa jafnvel slökkt hjá þeim eða litla birtu.
Vonandi hressast þeir.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Þetta er hreint borðsalt frá Kötlu, ekki joðbætt. Ég hef verið að skipta út 10% á dag síðan ég fékk þá, aðallega því ég þarf að soga burt óétna blóðorma og annað góðgæti. Venjulega skipti ég út svona 20% í viku eða 30% hálfsmánaðarlega. Áður en ég setti þessa fiska í búrið var ég búin að "cykla" það í tvo mánuði með einum gúbbífisk og ég gerði 20% vatnaskipti daginn áður en þeir komu í búrið.
Ég saltaði um leið og ég var búin að gera vatnsskiptin, er það verra?
Ég er búin að sjá hrygnuna, hún er heldur hressari en karlinn, sýnist mér. Ég held enn í vonina, sjáum til.
Ég saltaði um leið og ég var búin að gera vatnsskiptin, er það verra?
Ég er búin að sjá hrygnuna, hún er heldur hressari en karlinn, sýnist mér. Ég held enn í vonina, sjáum til.
Ef það er afgangur af matnum sem þú þarft að soga upp þá ertu að gefa mikið. Þegar maður gefur of mikið mengast vatnið miklu hraðar og þá er ekki víst að 10% vatnsskipti dugi. Ég myndi mæla með að minnka matargjöfina, skipta sjaldnar um vatn, en meira í einu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Ég gef bara nokkra blóðorma, þeir hafa bara varla snert þá, svo ég soga þá sem ekki hafa verið étnir úr búrinu á kvöldin... Þeir hafa étið flestar hydrurnar sem voru í búrinu en þeir verða nú að fara að narta í eitthvað annað sem fyrst.keli wrote:Ef það er afgangur af matnum sem þú þarft að soga upp þá ertu að gefa mikið. Þegar maður gefur of mikið mengast vatnið miklu hraðar og þá er ekki víst að 10% vatnsskipti dugi. Ég myndi mæla með að minnka matargjöfina, skipta sjaldnar um vatn, en meira í einu.
gefðu þeim tíma, ef þeir eru að éta hydrur hjá þér (sem ég hef ekki séð í mörg ár ) þá eru þeir allavega að éta og það bendir til þess að þeir séu að koma til
Eru þetta villtir eða ræktaðir fiskar hjá þér ?
hver flutti inn og hvaða verðmiði var á gripunum ?
Eru þetta villtir eða ræktaðir fiskar hjá þér ?
hver flutti inn og hvaða verðmiði var á gripunum ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
Ég hef ekki séð þá éta hydrurnar, en þeim hefur fækkað mikið síðan Betturnar komu í búrið. Ég býst við að þetta séu ræktaðir fiskar, strákarnir í Dýragarðinum fluttu þá inn fyrir mig. Þeir eiga enn nokkur eintök, ef fleiri hafa áhuga á "ljótum Bettum" Þeir kostuðu 1900 kr. stk.
Þeir átu dálítið af artemíu (frosinni) núna áðan, eru enn blettóttir, veit ekki hvort ég ætti að kaupa lyf...
Þeir átu dálítið af artemíu (frosinni) núna áðan, eru enn blettóttir, veit ekki hvort ég ætti að kaupa lyf...
Reyna aftur, og muna eftir að setja hitarann í samband næstMaggaN wrote:Kerlingin drapst í nótt. Karlinn tórir en ég er orðin svartsýn á að hann hafi þetta af, hann er ekkert að hressast
Úff, þetta var ekki góð byrjun á bettu-búskapnum mínum...
Hvað gera bændur nú?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net