Dvergar í 325 l

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Dvergar í 325 l

Post by Einar »

Fannst vera orðið tímabært að troða inn upplýsingum um búrið mitt...

Íbúarnir:
2x A. Borellii "opal"
2x A. hongsloi
2x A. Nijsseni
2x A. Cacatuoides orange
2x A. Agassizii double red
2x A. viejita
2x Laetacara curviceps
2x pelvichromis kribensis - veit þau eru ekki frá Ameríku... en þau eru dvergar... sleppur það ekki? :) karlinn dauður. Helvíti fúlt. fannst þau vera skemmtileg saman.
5x synodontis petricola - "Catfish" tegund. mjög litlir
4x corydoras aeneus albino - mjög litlir
2x pseudacanthicus leopardus
2x Hypancistrus inspector - ekki alveg viss um nafnið, en eftir langa leit á netinu þá held ég að þetta sé rétt
20x kardinálar
4x skalar - þessir kappar eru litlir. Reikna með að fækka þeim niður í 2

Setti Kardínálana og skalana með svona til að fá meira líf í efri hlutann á búrinu. finnst þeir bara setja ansi skemmtilegan svip...

En þetta er ekki alveg búið að ganga þrautalaust.... Búrið fylltist af þörungi og loksins þegar ég var búinn að ná tökum á því og vatnið orðið tært og fínt þá sá ég að Kardínálarnir voru komnir með hvíta bletti og A. Cacatuoides karlinn farinn haga sér vægast sagt furðulega.

Mér var þá bent á að þetta gæti verið veiki einangruð við neon/kardínála en fannst ég líka sjá bletti í uggunum á albínóunum. Þorði ekki að salta út af plöntunum og ákvað að prófa sulla lyfi í búrið. Var að vona að það myndi hugsanlega hjálpa A. Cacatuoides karlinum. Ekki frá því að kardínálarnir líti betur út en A. Cacatuoides karlinn heldur fimleikunum áfram...

Þetta er vonandi að komast á skrið hjá mér... Var með fiska sem pjakkur en er annars nýr í sportinu. Er gjörsamlega að tapa mér í þessu!!! :D

og þá nokkrar myndir af boxinu
Image
Búrið komið upp ásamt bakgrunni og gróðurmold.... að ógleymdum kókoshnetunum 2 :P
Image
Búinn að bæta við vatni og sandi ásamt að sjálfsögðu... kókoshnetunum 2 :D
Image
Gat ekki beðið lengur... Náði í nokkrar plöntur og 2 pör af dvergum ásamt að sjálfsögðu... kókoshnetunum 2 :D
Image
Búrið eins og það er í dag

Ef ykkur finnst eitthvað vanta í búrið eða eitthvað sem ykkur finnst að ég eigi að laga eða breyta þá eru öll ráð vel þegin :)

Má kannski bæta við að mér fannst Hongsloi parið vera orðið ansi hrygningalegt og ákvað því að setja þau í 54l búr. Vonandi kemur eitthvað út úr því...
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Laglegt.
Ég sé 2-3 stóra steina fyrir mér í þessu búri, svona þá í svipuðum stíl og bakgrunnin.
Gróðurinn á væntanlega eftir að taka við sér og breiða úr sér en ég mundi hafa hávaxnar plöntur í aftari hornum búrsins.

Er ekkert stríð milla allra þessara dverga ?
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

Ég sé 2-3 stóra steina fyrir mér í þessu búri, svona þá í svipuðum stíl og bakgrunnin.
Gróðurinn á væntanlega eftir að taka við sér og breiða úr sér en ég mundi hafa hávaxnar plöntur í aftari hornum búrsins.

Finnst þér þá að ég ætti að skipta út rótinni eða hnetunum fyrir steina? eða bara viðbót? pælingin var einmitt að hafa hávaxnari plönturnar aftast og hinar framar. Ætlaði svo að sjá hvernig þetta yrði þegar þegar þær færu að taka við sér
Er ekkert stríð milla allra þessara dverga ?
Það er alveg mesta furðu hvað þetta er friðsælt. En Afríkukallinn (Kribbinn) domineraði búrið til að byrja með en þegar hann drapst þá eru hinir svona nokkuð til friðs. En alltaf einhverjir árekstrar.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Halda hnetunni og rótinni. Sé fyrir mér steina til viðbótar, mér þykir flott að sjá stóra steina í búrum með svona grjóta bakgrunn.
Stærri rót væri kannski líka málið.
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

mjög skemmtilegt búr - til hamingju :D
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Skemmtilegt búr! Og mosavaxni bambusinn bara flottur,
þarf að skella mér á svona hjá strákunum við tækifæri :)
Image
ragz
Posts: 84
Joined: 16 Oct 2006, 15:18

Post by ragz »

Til hamingju með flott búr! Smíðaðiru þennan bakgrunn sjálfur eða?
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

Til hamingju með flott búr! Smíðaðiru þennan bakgrunn sjálfur eða?
Takk :) Nei hann var keyptur með búrinu. Hann er gerður úr frauðplasti.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvaða lýsing og hreinsibúnaður er í búrinu ?
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

Fyrirgefðu hvað ég er seinn að svara, en kallinn fór úr bænum um helgina og var ekki alveg með þetta í hausnum... :)

Í búrinu er 2x T5 perur held þær séu 36w (illlæsilegt)
Dælan er Eheim professional 2. Type: 2028 - 1050 ltr/hr

Ein spurning... sumar plöntur virðast tærast upp þegar þær koma í búrið hjá mér. Byrja á að verða hálf glærar og slappar enda svo bara í hálfgerðri drullu. og aðrar fá dökkgræna bletti... Einhverjar hugmyndir hvað gæti verið í gangi? Ég er með plöntunæringu undir mölinni og vatnið er held ég bara nokkuð gott...
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

Fannst á Honglsoi parinu að þau væru að gera sig líkleg til að fjölga sér og ákvað að setja þau í annað búr svo að þau fengju smá privacy. Kom þeim fyrir í 54l búri.

Image

Image
Kallinn í fínu formi en kella eitthvað feimin...

Þetta leit vel út. þau bæði mjög ástleitin en eitthvað hefur kallinn misskilið "fjölgun" því þegar ég kom heim úr vinnu í dag þá var hann dauður. Þau voru búin að vera í búrinu í ca viku... í gær hélt hann sig í ákveðinni fjarlægð frá kellu en virtist samt ekki vera neitt sérstaklega slappur

...helv fúlt
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Leiðinlegt svona.
Samt laglegasta búr hjá þér. Er ekki bara málið að henda öðru pari í búrið og vona að betur gangi.
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

jú það hugsa ég... er búinn að vera að sulla með lyf í hinu búrinu þannig að ég ætla að leyfa þeim að jafna sig vel á því. Spurning um að taka "test" á vatninu og ganga úr skugga um að allt sé í lagi. Það er nú eitthvað að fækka líka í pörunum... kallarnir eru svolítið að heltast úr lestinni :? Cacatuoides kallinn fór í einangrun hjá gustavberg um daginn

svo er spurning um að setja nokkur guppy pör í minna búrið og ná upp góðri bakteríuflóru og "samræðisnáttúru"...? :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ætli karlinn hafi ekki bara fengið hjartaáfall??

Þú veist að sumir "eðla" sig í takt við kirkjuklukkurnar, eitt slag inn, næsta slag út og svo koll af kolli.
Mitt gisk er að ísbíllinn hafi keyrt fram hjá!!

(En þetta var auðvitað bara algjör útúrdúr) :P
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

jú sennilega... kellan var að komast í sitt fínasta púss. Búin að bæta í litina og hafa sig til. kallinn hefur bara ekki þolað pressuna!! Kellan ágeng og ærandi hávaðinn í ísbílnum :lol:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það var þó leiðinlegt að hann skyldi fara svona, virkilega fallegur.
En ég segi eins og Vargur, bara að reyna aftur.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Ertu viss að þau hafi ekki verið búin að hrygna ??
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

Já ég er nokkuð viss um það... en þó ekki alveg. Ég gat ekki séð neitt sem benti til þess að þau væru búin að hrygna... er búinn að færa kellu aftur yfir í stærra búrið. var það vitleysa hjá mér...?
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Apistogramma

Post by Bruni »

Fúlt þetta með hongsloi karlinn, virkilega flott eintak farið þar í súginn. Mér finnst líklegt að þau hafi verið búin að hrygna og frúin hafi leikið "herramanninn" grátt á eftir. Þær geta verið miklar frenjur þegar þær eru háar á estrógeni. Farðu svo varlega með allar færslur á milli búra. Mín reynsla er að apistogramma dvergar séu ekkert að fíla mjög stór búr.
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

Aðeins farinn að sjá af hárþörungi í búrinu... eru einhver góð ráð við honum? er einhverjir fiskar (sem passa með dvergum) sem finnst gott að smjatta þessu?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Brún eða græn ? Sá brúni getur verið skelfings plága og erfitt að losna við. Skelltu þér á nokkra Sae, þeir kunna vel við að kjamsa á þörung.
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

næsta spurning... Hvað er SAE?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

en nú er ég með slatta af synodontis petricola og corydoras aeneus albino... eru þessir kallar ekkert í þörungnum?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Nei en petricolan gæti átt til að hreinsa upp seiði og hrogn þegar þeir eldast. Stórskemmtilegir og fallegir fiskar samt.
Fáðu þér slatta af ansistum og nokkra Sae í þörunga hreinsistörfin.
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Jordanella

Post by Bruni »

Eru þörungarnir á steinum eða komnir út um allt ? Þú ættir að prufa Jordanella floridae. Þetta eru killifiskar, eru duglegir við þörung og ansi fallegir. Þeir fást í Dýragarðinum.
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

éta þeir ekkert annan gróður frá manni líka?
Fallegir fiskar :)
Image
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Jordanella

Post by Bruni »

Sæl Vigdís. Held að þeir éti ekki gróður. Allavega væru þeir ekki í gróðurbúrinu hjá Kidda og Gunsa ef svo væri, eða hvað ?
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

Kallinn fór í Fiskabúr.is og ætlaði að skoða SAE og Jordanella floridae. Að sjálfsögðu labbaði ég út með eitthvað allt annað en ég ætlaði að skoða :P

Keypti 2 helvíti flotta gaura. Ekki með nöfnin á hreinu en skilst að þetta séu "walking catfish" Með þessum kaupum er ég víst kominn í monster fiska klúbbinn....YESSSSS!!! :lol:
Keypti líka gotfiskapar sem ég þekki ekki nöfnin á heldur

Image
Annað af litlu STÓRU skrímslunum

Image
... gotfiskaparið

Biðst afsökunar á því hvað myndirnar eru hreifðar, en mér gekk illa að fá fyrirsæturnar til að stoppa.

Skellti þeim öllum í 54l búrið sem ég var með Hongsloi parið í um daginn.

Vargur geturðu hjálpað mér með nöfnin á skepnunum...?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Velkominn í monster klúbbinn.
Gaman af þessu, skemmtileg blanda í búr. 8)
Gofiskarnir eru hinir stórskemmtilegu Limia nigrofasciata
http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/Fis ... _grein.htm

Walking catfish er held ég best þekktur með því nafni en heitir Clarias batrachus.
Post Reply