Jæja, þá er að komast mynd á samfélagsbúrið okkar.
Við keyptum notað búr fyrir 2 vikum með nokkrum hlunkum.
Í gær komust síðustu fiskarnir í fóstur á góð heimili, en í búrinu voru 3 Pangasiusar, 2 sutchi og 1 sanitwongsei og 1 gíraffakattfiskur í stærri kantinum, ochenoglanis occidentalis. Þá voru 3 Koi og 2 gullfiskar í stærri kantinum sem eru líka farnir. Þeir sem við ákváðum að halda voru 3 trúðabótíur og 1 gulur skali.
Þar sem við vildum hafa gróðursælt búr með fjölda smærri fiska voru þeir íbúar ekki að ganga upp; Pangasiusar hefðu séð um fiskana og gíraffinn hefði haldið áfram að grafa sig í gegnum búrið og skemma alla gróðurrækt.
Eftir nokkrar ferðir í flestar dýrabúðir á höfuðborgarsvæðinu og heimsóknir til Vargs er íbúalistinn orðinn eftirfarandi:
Fiskar:
3 skalar, par og stakur
6 Congo-tetrur, 2 kk og 4 kvk
6 Cherry barbar
2 Corydoras
3 Trúðabótíur
1 Kribbi kk
1 Spotted Bulldog pleggi
Gróður:
Vallisneria sp.
Anubias sp.
Java mosi
Java burkni
Óþekkt planta, afleggjari úr gróðurbúri
Yfirlitsmynd 17. nóvember
Spotted Bulldog pleco
Hin hliðin
Cherry barbi
Guli skalinn
Trúðabótía, um 10 cm
Corydoras
300L samfélagsbúr: Bogga/TobbiHJ
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
flott hjá ykkur búrið
java fern þolir ílla að vera í sandi líður betur fljótandi heldur en í sandi
smellið þeim ofan á steina eða rætur

www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
Þörungastríðin
Uppfærsla: Stríðið við þörunginn
Það er þó nokkur tími síðan við skrifuðum síðast um búrið okkar. Við höfum gert einhverjar breytingar á uppsetningu, bæði á plöntum og íbúum. Ætluðum að skipta út T8 ljósastæðunni fyrir T5 en það hefur ekki ennþá verið gert.
Við erum búin að standa í heilmiklu brasi við þörung. Við prófuðum þetta hefðbundna; að stytta ljósatíma, byrgja búrið betur frá sólarljósi, gefa minna og svona, en ekkert gekk. Við gerum regluleg vatnsskipti, ca. 60% vikulega. Þegar þetta gekk ekki lokuðum við á allt ljós og gáfum engan mat í 4 daga. Kíktum inn og allt fínt, þörungurinn horfinn og allir fiskar ná lífi (2 kk með góða sporða voru „rófu“lausir eftir þetta, einhver hefur verið orðinn svangur!). Við skiptum um 60% vatn í kjölfarið. 4 dögum seinna er búrið orðið jafnslæmt. Við myrkvum búrið aftur eftir 2 vikur í 4 daga, þá er það ekki einu sinni nóg, heldur er þörungurinn næstum jafnslæmur og fyrir myrkvun.
Fiskarnir eru orðnir slapplegir og eitthvað sýkingarlegir, við erum búin að missa 2 skala út af óþekktri bakteríusýkingu og plönturnar líta hræðilega út vegna ljósleysis. Við náum þó að bjarga nokkrum afleggjurum yfir í hin búrin okkar. Prófum að salta og hita sem hjálpar fiskunum en fer ennþá verr með plönturnar.
Nú biðjum við um aðstoð á Skrautfisksfundi. Ætlum að reyna að redda okkur UV-ljósi en bíða með þörungaeitur. Skrautfiskur eignast svona ljós stuttu síðar og býðst til að lána okkur það, sem við þiggjum.
Ég klikkaði á að taka mynd fyrir meðferð, en eftir klukkutíma ljósatíma er það strax skárra og lítur svona út, þann 13. febrúar:
Svona lítur þetta út í nærmynd, skot af anubias sem er ca. 10-15 cm frá glerinu:
Lítið gerist fyrsta sólarhringinn, en eftir tæpa 2 daga (44 klst) er allt annað að sjá búrið. Það er þó ekki enn orðið alveg tært:
5 klukkustundum seinna, eftir 49 klst er búrið orðið svona:
Síðan batnar þetta hægt og hægt og þegar við aftengjum UV-ljósið, eftir 5 daga notkun, er búrið orðið svona, þann 18. febrúar:
Og við erum orðin sátt!
Við þökkum Skrautfiski enn og aftur fyrir lánið á ljósinu!
Bogga/TobbiHJ

Muna að skipta vel um vatn eftir þetta, fullt af dauðum þörungi þýðir fullt af nítrati
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net