Líftími pera

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Líftími pera

Post by Sirius Black »

Er með búr sem ég er búin að eiga í um 1 og hálft ár og perurnar því jafngamlar búrinu :P. En er svona að spá hversu langur er líftími pera í fiskabúrum, sem sé hvenær eru þær orðnar daufari og lélegri en nýjar perur og sem sé hvenær maður þarf að skipta þeim út.
Er að leitast eftir hvað framleiðendur telja að sé líftíminn og ef einhver veit um síðu eða eitthvað svoleiðis sem er hægt að sjá þetta væri það mjög gott :) en þetta eru T8 perur sem ég er með (Sylvania).
200L Green terror búr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Almennt held ég að talað sé um að láta ekki líða meira en 1 ár milli peruskipta.
Mig minnir að perur tapi allt að 50% af eiginleikum sínum á 6 mánuðum.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Í plöntubúrum þar sem þarf að nýta alla lýsinguna fyrir plöntur, þá er gott að skipta perunum út á 8-10 mánað fresti, og á ekki öllum í einu, heldur með jöfnu millibili.
Í venjulegum búrum þar sem þarf ekki mikla lýsingu skiptir maður bara þegar manni finnst ljósið vera að verða ljótt.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

ok takk fyrir þetta :) þá þarf ég að fara að huga að skiptingu á perum hjá mér í þessu búri :P, reyndar vaxa plönturnar ágætlega og eru ekki ljótar ennþá í þessu búri þrátt fyrir gamlar perur þannig að ég kannski geymi það aðeins lengur :oops:
200L Green terror búr
Post Reply