vandræði hjá nýliða

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

vandræði hjá nýliða

Post by JinX »

jæja þá kom að því að eitthvað gerðist.... :(

einn óskar drapst hjá mér í kvöld fannst hann hafa verið veiklulegur ( frekar slow) þannig að ég mældi vatnið í gærkveldi og niðurstaðan var óljós en sirka svona: nitrate = 10 nitrite = 1 hardness = 3-6 alkalinity = 0-3 ph = 6.8 - 7 en hélt að þetta væri nú bara eðlilegt, en svo fór ég út í morgunn og er bara nýkominn heim þegar að ég sé fiskinn dauðann og þegar betur er að gá þá er ein planta í henglum hjá mér ( veit ekkert hvort að það tengist þessu eða ekki)

ég skoðaði fiskinn og það eru engir blettir á honum né neitt sem ég sé að veit ekkert hvað ég á að gera hér... nema náttla að skipta einhvað um af vatni en meira veit ég ekki :?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þessar mælingar hljóma ok, sennilega hefur þetta verið eitthvað tilfallandi. Var þetta ekki lítill Óskar ? Þeir geta verið óutreiknanlegir og eiga það til að vera svo dónalegir að drepast fyrirvaralaust. Ef aðrir fiskar virðast eðlilegir þá þarf sennilega ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu.
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

nú er ég ekki búinn gera mikið annað en að fylgjast með hinum fiskunum og allir nema hinn óskarinn eru eðlilegir

óskarinn virðist vera bara á toppnum að gleypa loft eða að reyna að borða eða einhvað... somethings fishy all right
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

þetta er ekkert fyndið lengur :( sporðurinn er nú allur tættur á hinum óskarnum og smá hvít slækja yfir hægra auganu er nú að skipta meira um vatn en getur þetta verið sporðæta og ef svo er hvað er við því að gera því nú á maður aðra fiska sem ekki sýna nein einkenni og væri til að halda því þannig. allar ábendingar vel þegnar.

ps takk fyrir aðstoðina vargur :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eru einhverjir fiskar með honum í búri og er ekki örugglega gott vatn þar ?
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

það var bara 1 skali og tveir gibbar en færði hann yfir í annað búr með 2 maingano ungum en þeir eru bara búnir að vera skíthræddir við óskarinn síðan hann kom yfir
Post Reply