Jæja, eftir frekar brösuglega byrjun á bettubúskapnum mínum (parið fékk alvarlegt tilfelli af white spot + aulaskap eiganda og kerlan drapst) fékk ég nýja kerlu í Dýragarðinum fyrir hálfum mánuði eða svo.
Sú nýja er heldur betur spræk og var ekki sein að troða sér yfir í karlahelminginn af búrinu og daðra við kauða. Sá brást auðvitað hinn versti við og rak hana í burtu og byrjaði svo að blása hreiður eins og óður, nýbúinn að hrista af sér sýkinguna sem næstum drap hann. Kerlan virðist finna sér leiðir í gegnum eða framhjá skilrúminu mínu (sem er dálítið skítfix, eins og gengur) og hefur bara sína hentisemi.
Fyrsta hrygningin varð bara nokkrum dögum eftir að kerla kom í búrið og hreiðrið hans var lítið og lélegt og á alveg vonlausum stað (í því horninu á búrinu þar sem eru engar flotplöntur og mestur straumur...) og eftir tveggja daga stanslaust viðhald og streð, gafst hann upp á þessu heimili og allt leystist upp og ekkert varð úr neinu.
Það er núna rétt rúm vika síðan þetta var og núna var ég að sjá að kerlan hefur aftur troðið sér yfir, og er í óða önn að daðra við karlfauskinn, sem hefur gert jafnvel enn lélegra hreiður í þetta skiptið. Það eru komin nokkur egg í það en ég spái þessu svipuðum örlögum og því fyrra.
Ég verð að útvega mér betri skilrúmum, hvað get ég notað? Þessi kynóða bettukerla á eftir að gera útaf við sig og karlangann áður en yfir líkur. Ég býst við að hann þurfi meiri tíma til að gera almennilegt hreiður áður en hann fær að knúsa þessa villtu kerlu sína meira...
Það er alveg þrælgaman að þeim, hún fer bara beint í fangið á honum og hann sýnir sig og svona til málamynda og svo er bara hafist handa við að gera dodo, sem er mjög fallegt, næstum því listrænt, hjá þessari yndislegu tegund af fiskum
Kynóða Betta
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Hvaða straum ertu með í búrinu ?
er þetta ekki sér búr hjá þér
gott að hafa bara lítinn svampfilter og loftdælu sem er bara rétt að malla þetta svo kallinn geti gert alvöru hreiður
er þetta ekki sér búr hjá þér
gott að hafa bara lítinn svampfilter og loftdælu sem er bara rétt að malla þetta svo kallinn geti gert alvöru hreiður
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
- Bambusrækjan
- Posts: 443
- Joined: 06 Apr 2009, 23:52
- Location: Reykjavík
Ég á bara eitt búr. Ég ætlaði bara að hólfa það niður svo ég gæti kannski komið upp einhverjum seiðum. Þetta á nú ekki að vera neitt massív ræktun, efast um að ég fyndi heimili fyrir tugi af betta smaragdina, þær eru nú ekki mjög vinsælir fiskar...
Er ekki hægt að hafa bara fínan sand, þá hlýtur hann að finna hrognin?
Ég þarf svona skilrúm sem hólfar búrið í sundur, ekki get ég látið kerlinguna dúsa alltaf í kókflösku (fyrir svo utan það að það lúkkar ekki vel...)
Ég er með venjulega straumdælu (Rena filstar iv2) en kókosmottan sem er í bakgrunninum tekur mesta strauminn, svo það er bara nærri lygnt, nema í einu horninu. Kannski maður ætti að fjárfesta í loftdælu og setja botnhreinsi eða bara svona svampfilter...
Er ekki hægt að hafa bara fínan sand, þá hlýtur hann að finna hrognin?
Ég þarf svona skilrúm sem hólfar búrið í sundur, ekki get ég látið kerlinguna dúsa alltaf í kókflösku (fyrir svo utan það að það lúkkar ekki vel...)
Ég er með venjulega straumdælu (Rena filstar iv2) en kókosmottan sem er í bakgrunninum tekur mesta strauminn, svo það er bara nærri lygnt, nema í einu horninu. Kannski maður ætti að fjárfesta í loftdælu og setja botnhreinsi eða bara svona svampfilter...
- Bambusrækjan
- Posts: 443
- Joined: 06 Apr 2009, 23:52
- Location: Reykjavík
Betta seiði eru mjög lítil , og þau munu sogast öll í venjulega dælu. Það er erfitt að gera þetta í "venjulegu" búri. Þarf helst sér seiðabúr. Það þarf ekki að vera stærra en 20L. Svo þarf helst micro orma sem fæðu fyrstu 30 dagana fyrir seiðin. Þetta er smá vesen, en samt ekkert svakalegt ef þú ert með allar græjur. Þ.e.a.s seiðabúr , svampfilter og smá micro orma ílát. Þetta verður ekki vesen fyrr en karlarnir verða nógu stórir og fara að slást