Veikur fiskur

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Doppla
Posts: 9
Joined: 31 Jul 2009, 02:43

Veikur fiskur

Post by Doppla »

Sæl kæra fiskafólk,
Ég er með 60l búr með gullbörbum og cherrybörbum, tveim litlum vatnafroskum og tveim ryksugufiskum sem ég man ekki hvað heita.
Við erum búin að vera með búrið síðan í lok ágúst og hefur allt gengið vel hingað til, en ég var pínu stressuð yfir vatnsgæðum og slíku í byrjun.
Ég tók svo eftir því í gær að einn cherry barbinn hegðaði sér mjög furðulega, synti nálægt botninum og hreinlega lagðist á botninn svo að ég hélt nokkrum sinnum að hann væri dáinn. Ég gerði strax um 50% vatnsskipti ef þetta hefði eitthvað með vatnsgæðin að gera þar sem ég var allt í einu ekki alveg viss hvenær ég gerði þau síðast. Hef aðeins misreiknað mig þar sem ég hefði átt að gera þau í kringum síðustu helgi miðað við að gera skipti á um 2 vikna fresti. Ég hafði samt mælt vatnið með strimli deginum áður eða þar áður og það var allt í lagi þá.
Nú allavega litla greyið hefur ekki breytt hegðun sinni mikið eftir þessi skipti og hinir virðast allir hressir og fínir. Ég hélt nú aftur að þessi væri dauður í morgun, þá bara lá hann á botninum, svo þegar ég ætlaði að fara að ná honum upp var hann horfinn. Þegar ég færði til rót kom hann í ljós og var þá að synda aðeins um, samt af litlum mætti og mjög nálægt botni.
Nú finnst mér mjög líklegt að hann verði búinn að ljúka sínu lífi þegar ég kem heim í dag, en er aðallega að velta fyrir mér hvort þetta gæti verið einhver veiki eða hvort að þetta sé bara mér að kenna vegna vatnsgæða! :p Þarf allavega að passa að setja þau skýrt inn á dagatal í framtíðinni til vara. En hverju ætti ég að fylgjast með hjá hinum fiskunum ef þetta er einhver veiki? Og ef þessi verður ennþá á lífi en hegðar sér eins þegar ég kem heim, er þá eitthvað sem ég get gert??
Takk kærlega,
Óörugg fiskamamma
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er ekkert óalgengt að einn fiskur sýni einhvern slappleika og drepist. Ef aðrir fiskar í búrinu eru eðlilegir og vatnsgæði og annað er í lagi þá er óþarfi að vera með áhyggjur.
Ég mæli samt með að veika fisknum sé fargað sem fyrst ef um sjúkdóm skyldi vera að ræða til minka líkurnar á að hann berist í aðra fiska.
Doppla
Posts: 9
Joined: 31 Jul 2009, 02:43

Post by Doppla »

Takk fyrir svarið. En þannig að ef þetta grey er enn á lífi þegar ég kem heim en hegðar sér eins á ég þá bara að láta hann fara út í sjó?
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

setja hann í háf eða poka og lslá honum í eitthvað er skemmtileg leið til að drepa hann áður en hann fer í klósettið :twisted:
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

GUðjónB. wrote:setja hann í háf eða poka og lslá honum í eitthvað er skemmtileg leið til að drepa hann áður en hann fer í klósettið :twisted:
Skemmtileg !? :roll:
Doppla
Posts: 9
Joined: 31 Jul 2009, 02:43

Post by Doppla »

jæja...þá er ég sem sagt komin heim og ég sé að hann liggur undir stórri rót í búrinu og er nú eitthvað aðeins að hreyfa sig, en liggur samt mikið á hliðinni... þannig að mælið þið sérfræðingarnir þá bara með líknardrápi? :?
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

klárlega, fiskum er sjaldnast bjargað þegar þeir eru orðnir svona slappir. Þú gerir honum bara greiða með því að stytta þetta fyrir honum, fínt að setja í plastpoka og berja honum í borðið, þá slokkna ljósin nokkuð hratt.
Slæmt að láta veika fiska drepast í búrum eins og Vargurinn benti á, þá aukast líkurnar á því að það sem var að angra þá smitist í fleiri fiska.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Ég hef yfirleitt tekið veika/dauðvona fiska upp með háf og slegið þá í hausinn með einhverju.. örugglega fljótlegri leið, en þessi poka aðferð :? Það væri eitthvað furðulegt ef ég myndi sjá einhvern laxveiðimann, stynga lax í ruslapoka og slá honum utan í allt :lol: þá held ég að smá högg á hausinn sé betra og fljótlegra.. :-)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Dýfa fisknum í vodka eða eitthvað jafn sterkt þá er hann dauður á núinu, sársaukalaust.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Og svo hella úr glasinu í sjálfan sig :lol:
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

:five:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Doppla
Posts: 9
Joined: 31 Jul 2009, 02:43

Post by Doppla »

Takk fyrir svörin. Litla greyið er farinn í síðustu "sundferðina" út í sjó. 5 ára eigandi var svo bara nokkuð rólegur yfir þessu öllu saman. Reyndar fékk hann nú reyndar ekki að vita að það hefði aðeins þurft að hjálpa fiskinum að deyja, mér fannst það óþarfi...
Hinir eru enn í stuði og sjálfum sér líkir svo við vonum það besta...
rabbi1991
Posts: 221
Joined: 10 May 2009, 03:23
Location: Reykjavik, 112

Post by rabbi1991 »

Þessi vodka leið er einhver sniðugasta hugmynd sem ég hef heyrt. Bara tip í Stroh 80 sem er já einsog nafnið segir 80% og tjahh. smá skol í munninn er nógu anskoti sterkt fyrir mér svo litlir fiskar ættu að hverfa við smá af þessu
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

eða selbit í hausinn ... einhver að setja upp þrá hvernig best er að drepa fiska :roll:
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Post Reply