Er einhver von með þennan ?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Er einhver von með þennan ?

Post by Gúggalú »

Annar slör coridorinn minn hfeur aldeilis lent í einelti og vantar mestallan sporðinn á hann. Ég tók hann frá og setti hann í gotbúrið til að hann fengið frið fyrir böggurunum. Hann er reyndar núna á maganum ekki svona liggjandi á hlið, hann fór svona bara þegar við fluttum hann.

Image

Ég er búin að salta búrið og gefa costapur því að plattyarnir mínir eru allir í blettum og hákarlarnir að fá smá bletti. Ég hef áður fengið þessa gleði í búrið og vona að það gangi nú vel núna.

En, fiðrildasíklíðurnar sem voru í búrinu eru eiginlega komnar í skammakrókinn og verða þar í dag. Setti þær í bala á eldhúsborðið því að þau eru gjörsamlega að fara yfrum yfir nnýju fiskunum og þeir fá ekkert að synda neins staðar í búrinu. Ætlaði að láta þá vera þarna í dag svo að hinir fiskarnir geti aðeins áttað sig í búrinu án þess að vera hundeltir.
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Það er alltaf von, afrísk kvk hjá mér missti allan sporðinn eins og hann leggur sig en hann var kominn aftur þegar líða var farið á annan mánuðinn
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

Já, einn barbinn hjá mér missti allan sporðinn og hann kom aftur. Þessi er bara svo veiklulegur og andar rosalega hratt. En verður spennandi að sjá hvernig fer. Hann fer ekki í Gustavsberg fyrr en alveg í lokin því ég bara var að kaupa hann
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

þú bara jarðar hann eins og maður!..
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

Mr. Skúli wrote:þú bara jarðar hann eins og maður!..
Kemurðu í útförina ?
Hann er nú ansi slappur og það verður met ef hann lifir nóttina
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

Jæja hann lifði nú ekki lengi greyið. En svo var ég að leita að öðrum nýjum fiski í búrinu og fann hann loks í helli dauðann :cry: sé eftir honum því hann var svo fallegur.

Image

En þarf núna að fara að þrífa búrið, mikill svona brúnn þörungur og bara allt að verða frekar yakky. Þreif dæluna og hitarann aðeins í gær þannig að það ætti að vera komið smá líf í dæluna aftur. Ætti mér þá ekki að vera óhætt að þrífa búrið þokkalega vel og geyma bara smá vatn til að setja með eða fer flóran alveg á hvolf ?
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Öll svona yfirgengileg þrif geta verið hættuleg en persónulega geymi ég aldrei neitt vatn ef ég er eitthvað að brasa, í vel uppsettu búri er alltaf hellings flóra og ef þú ert ekki að sullast í dælunni og þrífur mölina rækilega á sama tíma þá er mín reynsla að allt að 90% vatnsskipti séu í lagi.
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

Ég þreif dæluna einmitt aðeins í gær, er bara með litla dælu, ætti ekki að vera komið sæmilegt líf í hana ? svo er auðvitað gróðurinn og svona og aldrei verður mölin öll skrúbbuð... þannig að ég kannski bara læt slag standa og sé hvað ég geri mikið
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
Post Reply