Smá vesen hjá nýliða!

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Maren
Posts: 91
Joined: 03 May 2007, 20:11
Location: Hafnarfjörður/Reykjavík

Smá vesen hjá nýliða!

Post by Maren »

Hæ, hæ!

Ég er með þvílíka sótt í búrinu mínu. Allir fiskarnir mínir eru með hvítblettaveiki en ég tók ekki eftir því fyrr en á lokastigi. Einnig eru/voru nokkrir með sporðætu. Var með 31 fisk í búrinu mínu en á aðeins 16 eftir; 4 skala, 5 fimmrandabarba, 1 glow tetru, 3 gúbbí, 1 corydoras albino, 1 ancistru og 1 kínasugu. Skalarnir og barbarnir eru sterkastir enda sína varla að þeir séu veikir. Ég er búin að setja sjávarsalt í búrið og einnig lyfið gegn hvítblettunum, búin að fjarlægja plönturnar og setja þær í einangrun og búin að hækka hitann á búrinu. Vil ekki setja lyfið gegn sporðátunni fyrr en meðferðin gegn hvítblettunum er lokið. Er ég að gera e-ð vitlaust? Þarf ég að þrífa allt búrið hátt og lágt eftir meðferð til að losna við saltið og náttúrulega sníkjudýrin?
Plís hjálpa!

Kv.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Lyfið og saltið hefur alltaf reddað þessu hjá mér.
Saltið er ekki hættulegt.
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

Það þarf ekki að vera að þetta sé sporðáta, gæti verið bara afleiðing veikindanna. Bara salta vel og skipta út vatni þegar mælt er með í meðferðinni. Svo eftir lyfjameðferðina að gera góð vatnaskipti og bíða og sjá. Þetta tekur alltaf einhvern tíma. En þegar þetta kom í mitt búr þá var einn fiskur sem missti alveg sporðinn, hann kom aftur á um mánuði þegar veikin var gengin yfir.
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta virðist allt hárrétt hjá þér, fylgdu bara leiðbeiningunum með lyfið og skiptu út vatni í samræmi við þær, hafðu engar áhyggjur af saltinu, það fer úr við vatnskiptin.
Post Reply