Aðgerð: Callamanus removal.

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Aðgerð: Callamanus removal.

Post by Bambusrækjan »

Mig langar að deila með ykkur smá næturævintýri. Málið er þannig vaxið að ég keypti 3 spengilega neon regnbogafiska úr dýraríkinu í gær. Ég fer með þá heim og skelli þeim í sóttkvíarbúrið mitt. Þá tek ég eftir fyrir tilviljun , rauðum þráð úr einum af nýkeyptu fiskunum. Ég þekki einkennin og sé að þetta er Callamanus ormur. Andstyggilegt snýkjudýr sem getur leitt fiska til dauða. Þannig að ég skelli Levamisole í búrið og slekk ljósin. Svo eftir ca klukkutíma fer ég inn með vasaljós og skoða fiskana og tek þá eftir að ormurinn er næstum allur komin út. Ég næ þá í sýkta fiskin og fjarlægi ormin með flísatöng , sem var býsna stór ca 3 - 4 mm. Ég grandskoðaði hina fiskana en ekkert virtist koma út úr þeim. Þetta er með því ógeðslegasta sem ég hef gert í þessu hobbíi til þessa. Læt fylgja mynd að orminum umtalaða.

Image

Viðbjóður.
User avatar
plantan
Posts: 140
Joined: 17 Nov 2009, 22:02
Location: Reykjavík
Contact:

Post by plantan »

óhj barasta! þetta er viðbjóður!
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Góð mynd
nú er engin afsökun að fiskamyndirnar séu ekki í fókus :)
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

þú kendir mér þetta macro dæmi :idea:
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

ég hef dregið svona úr dauðum fisk, þá náði ég út nokkrum ormum :æla:
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

Ójjj
:)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

í fyrra var ég með veikan fisk, var með rauðar doppur yfir hann allann. Ég skellti mér í krufningu þegar fiskurinn drapst, hann var fullur af þessu að innan. Frekar ógeðslegt að kryfja svona veika fiska.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Það er sport í þessu ;)

Kveðjur
Eymar
jæajæa
Fiskurinn
Posts: 271
Joined: 11 Jun 2007, 12:37

Post by Fiskurinn »

Sushi einhver...
Sportið snýst um vatn, Heldurðu vatninu góðu,þá heldurðu lífi í vatninu..!
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Er þetta ekki líkt njálg
svona ormar sem finnast í hundum og í mönnum
ef ykkur klæjar núna gæti það verið svipaður ormur :)
nema ef ykkur klæjar í hausinn núna þá gæti það verið lús :twisted:

Annars er gaman að sjá svona myndir af þessum kvikindum
það gerir þetta allt miklu persónulegra
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Post Reply