Hér set ég inn eitthvað a þeim myndum sem ég tók í heimsókn hjá Bambusrækjunni
reyni að velja þær skástu af hverri tegund um leið og ég ákveð hverjar ég set inn á síðuna hjá mér
Þetta er Melanotaenia boesemani
Ég tók helling af myndum daginn áður og datt þar niður á frábæra stillingu sem henntaði fyrir búrið ( þær eyðilögðust ) og mig minnti að þetta væri hún en svo var ekki myndirnar voru dekkri og þar af leiðandi minni fókus og augun koma sjaldnast vel út því miður
Það er spurning hvort Bambusrækjan gæti svo svarað þeim spurningum sem þið viljið spurja
Ég skil ekki ahverju Guðmundur er ekki 100% sáttur. Mér finnst þessar myndir vera frábærar. Það getur verið að fyrri myndirnar hafi heppnast eitthvað betur , en þessar myndir af t.d af Bósunum eru alveg í sérflokki.
ég var með meiri skerpu í hinum myndunum
hefði ég nú getað rambað á rétta stillingu aftur þá hefðu fiskarnir verið bjartari og betur í fókus
og svo er standardinn alltaf að hækka hjá manni
Ég tek fram að þessir Parkisonar eru enn ungir og ekki komnir í fullan lit. Þeir eru samt búnir að bæta á sig meira af þessum þessum skær appelsínugula lit síðan ég fékk þá fyrir nokkrum mánuðum. Ég hlakka til að sjá hvernig þeir þróast.. og Yes ! Ég er vel sáttur við þessar myndir af fiskunum mínum
Þetta eru allt ungir fiska sem eiga eftir að taka meiri liti er þeir eldast regnborafiskar þroskast hægt og batna stöðugt með aldrinum sumar tegundir verða yfir 20 ára
Þetta er glæsilegt, ekki hægt að segja annað. Flottar myndir Gummi og gaman að sjá að regnbogafiskar eru að öðlast þann sess sem þeir verðskulda. Flott hjá Bambusrækjunni.
Flott pose hjá splendida regnboganum á neðri myndini. Svo er reyndar eitt enn, ekki verða regnbogarnir bara fallegri með aldrinum. Heldur eykst litadýrð þeirra til muna þegar þeir eru í hrygningarhugleiðingum. Og þeir eru í "stuði" allavega tvisvar á dag
þetta var eina pósan seinni daginn
þeir pósuðu mikið þegar ég kom fyrst en seinni daginn voru þeir allir að flýta sér eitthvað og syndu alltaf þvert yfir búrið eins og sést á öllum hinum myndunum
Það gerir helling fyrir fiska mynd að það sé eins og fiskurinn sé að gera eitthvað ekki bara þjóta framhjá
en ég get svo sem ekkert kvartað
hef sjaldan komist í að mynda regnbogafiska þannig að ég fæ helling af myndum í safnið og þessar myndir hér ýta öðrum verri myndum út sem eru eldri og alls ekki eins góðar
Flottir Regnbogar hjá þér. Alltaf gaman þegar menn eru í alvöru fiskum. Það þarf smá þolinmæði með regnboganna tekur þá tíma að fá lit en ekki alla.
Svona til gamans þá er komið um 100-200 seiði af Melanotaenia boesemani ef ekki meira hjá mér. Gummi þú veist hvar eitt stærsta regnbogasafn er. Verður nú að fara að kíkja á þetta með vélinna....
Rembingur wrote:Flottir Regnbogar hjá þér. Alltaf gaman þegar menn eru í alvöru fiskum. Það þarf smá þolinmæði með regnboganna tekur þá tíma að fá lit en ekki alla.
Svona til gamans þá er komið um 100-200 seiði af Melanotaenia boesemani ef ekki meira hjá mér. Gummi þú veist hvar eitt stærsta regnbogasafn er. Verður nú að fara að kíkja á þetta með vélinna....
Já ég er vel spenntur að koma og taka myndir hjá þér
Reynum að finna tíma á þessu ári
Bara þessa rauðu, en þeir eru líka í sóttkví og eru frekar litlausir og óspennandi núna. Ég fæ kannski að bjóða þér seinna í heimsókn þegar ég verð kominn með 720 L búrið í gagnið og Regnbogarnir verða orðnir stærri og afslappaðir. Og maður verður kannski komin með nýjar og spennadi regnboga tegundir. Ekki er samt hægt að bjóða þér í kaffi þar sem þú drekkur það ekki Varla að maður myndi samt þora að bjóða þér bjór, þar sem það kæmi líklega niður á myndunum
Ég vill þakka þér fyrir greinina á http://www.fiskabur.is. Ég er vægast sagt vel sáttur við heimsókn þína. Ég átti von á 10 red cherry rækjum en fékk grein og myndir af fiskunum mínum í kaupbæti, ekki amalegur díll það .