Hvíta Convict parið mitt.

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Hvíta Convict parið mitt.

Post by Hólmfríður »

Ég er hálfgerður núbbí í sikliðunum en varð svo heillum af einu hvítu Convict pari í Fiskabur.is, fylgdist með þeim eignast seiði og hugsa um þau og fleira, fannst þetta allveg magnað og ákvað að kaupa mér 70l búr fyrir þau og gera eitthvað flott fyrir þau. Núna er ég sem sagt búin að kaupa þau og strax 3 dögum eftir að ég setti þau í búrið þá fór kellingin að hrygna. Núna eru semsagt komin seiði en eitthvað finnst mér þeim fara fækkandi. Ég á ekki í augnarblikinu auka búr undir seiðin. En það verður einhvertíma. Ég hef líka tekið eftir að kallin er alltaf að reka kellinguna í burt, ég bíst við að hún sé að fá sér seiði í matinn :lol: En allavega, þetta eru stór fallegir fiskar og líklegast skemmtilegustu fiskar sem að ég hef átt, hef aðallega átt gúbbý og svona þessa týbísku fiska.

en hérna koma myndir af búrinu. ég er mjög opin fyrir hugmyndum og tek allt í mál. :wink:

Image

Image
Image
Image
Image
Image

kv.Hólmfríður
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Það sem að ég mæli með ef að kallinn er alltaf að elta kerluna er að bæta við felustöðum svo að hún geti falið sig. Ég var að lenda í því að Convict kallinn minn gekk frá kerlunni þó svo að þau hafi verið par í um ár. Það kom mér soldið á óvart.

Annars lítur þetta mjög vel út hjá þér :)
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Já ég var einmitt að spá í að fá mér svona keramik pott, seta gat efst svo að hún gæti falið sig þar ofan í.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Convict er frábær fiskur og mjög vanmetinn, þrátt fyrir að það sé auðvelt að rækta þá eru þeir oft ekki til í verslunum. Einn Convivt eða fleiri af sama kyni eru skemtilegir í sikliðibúr eða bara einir og sér.

Ég er með eldra par sem virðast eiga mjög vel saman um daginn hringdu þau í búr sem ég seldi svo. Ég tók blómapottinn sem hrognin voru í og parið á eftir ásamt slatta að öðrum fiskum. Þau héldu áfram að hugsa um hrognin í nýja búrinu og nú eru komin seyði.

Mér dettur eitt í hug með árásir karlsins á kerlinguna. Getur verið að þegar þau eru bara tvö þá ráðist hann frekar á kerlu, parið mitt hefur alltaf verið með öðrum fiskum eða í tvískiptu búri þannig þau eru alltaf að nuddast í hinum fiskunum, kannski þarftu að trufla þau meira, reka háfinn ofani og setja hendina á búrið svo þau hafi einhvern til að böggast við í sameiningu.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

convict er frábær fisktegund . fallegt par hjá þér hólmfríður.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er með nokkra Convict, þar á meðal unga kerlingu og karl í sitthvoru búrinu, í dag færði ég karlinn og setti í lítið búr sem er við hliðina á búrinu sem kerlingin er í. Þau sáu hvort annað í gegnum glerin og eru búin að vera að hamast á glerinu í allan dag, kerlingin er meira að segja búin að vera að reina að grafa sig undir glerið. Þetta kallar maður ást við fyrstu sín. :D
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Jæja, ég ætla að koma með smá fréttir.

Fyrsta hygningin var ekki heppnuð. Kellingin át öll seiðin. Svo kom kallin og varð allveg öskureiður og allveg stór skaddaði hana. Vantaði stykki úr sporði og ugga hjá henni eftir ásárina :? :lol: En hún er búin að ná sér núna, eftir að ég setti keramik pott ofan í til hennar, og ég gerði gatið það stórt að aðeins hún gat komist ofan í svo að hún hefði nú eitthvað skjól frá kallinum sínum.

Svo var ég að skipta um vatn hjá þeim í gær og kommst ég að því að það eru aftur komin seiði. Það skrítnasta var að þau voru öll ofan í pottinum, en kallin kommst ekki ofan í hann. Hvernig gat hann frjógvað eggin ?


En allavega, þá sendi hann Vargur mér pm og vildi fá að vita hvernig gengi með seiðin, ég sagði honum bara hvað gerðist og hann bauð mér að fá lánað 45l búr undir kellinguna. Núna er ég búin að sækja það og kellingin er komin ofan í. Búrið er staðsett fyrir neðan hittbúrið og var ekki pláss fyrir það annarstaðar, þannig að það er ekkert ljós hjá greyjinu, en ég redda því einvernvegin. Er í lagi að hafa dimmt hjá henni í kannski svona 4-5 daga, kannski styttra ?

Ég ætla bara að vona að kallin hugsi vel um seiðin en þau eru ekki farinn að synda frjálst um búrið ennþá. En ég vona að þau stækki hratt :/ ...

Kem með myndir fljótlega.

Kv.Hólmfríður
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Skemmtilegt að fá svona surprise, vona að þetta gangi vel hjá þér, parið er svo fallegt.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Fiskunun er yfirleitt alveg sama þó lítið sé ljósið, reyndar líður flestum sikliðum best í hálfgerðu myrkri, ef búrið er ekki hreinlega lokað inni í skáp og hún sér til að éta þarftu engar áhyggjur að hafa.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Takk fyrir þetta :D ...þá þarf ég kannski ekkert að redda nýju ljósi ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég á ljós sem er 60 cm löng pera og hægt er að koma fyrir undir loki.
Ég er til í að lána þér það ef það kemst fyrir í búrinu.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

ég held að hillan sé ekki það löng...og það fylgdi ekkert lok með búrinu =/
User avatar
Kubbur
Posts: 100
Joined: 09 Oct 2006, 13:28
Location: Reykjanesbær
Contact:

Post by Kubbur »

áttu ekki lítinn lampa eða eitthvað svoleiðis, reddaði mér þannig með froskabúrið fyrsta mánuðinn :p
biggihb
Posts: 222
Joined: 08 Oct 2006, 18:04
Location: kópavogur
Contact:

Post by biggihb »

Frábært að það gengur strax svona vel hjá þér eitt svona smá hint búrið væri mikið betra með bakgrunni mér fynnst alltaf vanta svo mikið þegar hann vantar----annars bara fínt
Lífið er ekki bara salltfiskur
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Já ég skil þig =/..ætla að fá mér svona bakgrunn einhvertíma með svona gróti á...ég meina þá ekki plöntubakgrunn...passar bara hreinlega ekki við :P

En, seiðin stækka hratt og ef að einhver vill panta hjá mér fiska þá má hann bara fá hjá mér þegar að hann vill, þegar að fiskarnir eru orðnir stærri

Verð : 0 kr.
User avatar
Kubbur
Posts: 100
Joined: 09 Oct 2006, 13:28
Location: Reykjanesbær
Contact:

Post by Kubbur »

væri alveg til í að fá einn ef ég hefði pláss
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Jæja...loksins drullaðist ég til að taka mynd af seiðinum

Image

;) ...þau eru allavega farinn að líta út eins og fiskar :P
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hvað eru þau stór í cm?
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

vá nú veit ég ekki ...örugglega svona 1 cm
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

heyrðu ..fattaði ekki allveg hvað 1 cm er lítið ..ég mundi segja að sum eru allveg 2,5 cm ^^,

en það er mjög erfitt að mæla þau =)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er alveg ferlegt að þau skuli ekki geta verið kyrr á meðan maður þarf að ná máli! :P

Þetta er nú a komast í ágæta stærð hjá þér.
Hvað gefur þú þeim að éta?
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

ég er að gefa þeim eitthvað gott seiða fóður sem að fæst í Fiskabur.is ^^,
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Núna er þetta orðið skrítið...seiðin eru orðin bara 7 og það hlítur bara að vera kallin sem að er að éta þau :? ...ég er búin að taka seiðin sem að eftir eru og færa þau yfir í skrautfiskabúrið mitt, en þar eru bara litlir fiskar og geta þeir ekki komið seiðinum í munnin á sér. ...veit einhver afhverju hann er að gera þetta ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Er honum ekki bara farið að leiðast uppeldið. það er ekkert grín að vera einstæður faðir. :)
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

hehe...en ef að ég set kellinguna ofaní til hanns aftur þá étur hún þau líka :?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég held þú verðir þá bara að taka seyðin frá parinu áður en þau byrja að éta þau.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Já, ætli ég verði ekki að gera það í framtíðinni...ég er búin að bjarga þessum 7 sem að eftir eru og færa þau í annað búr :?
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

jæja...sjálfeyðandi seiðin mín eru öll horfinn, en kellingin er komin með egg og núna ætla ég að færa seiðin yfir í 54l búr þegar að þau koma úr eggjunum...hvað þarf ég að hafa í svona seiða búri ? ..eitthvað sérstakt ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

....hmmm, loftstein eða hreinsidælu og vatn, ég held það dugi.
Convict seyðin gera ekki miklar kröfur, hitari hjálpar til að þau vaxi hraðar en er ekki nauðsyn.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

haha ! ..ekki þarf mikið til =P...takk fyrir þetta ..betra að hafa sand eða engan sand ? ...*ljóska hér*
Post Reply