Hvaða gæludýraverslun ert þú ánægðastur/ánægðust með?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply

Hvaða gæludýraverslun ert þú ánægðastur/ánægðust með?

Poll ended at 01 Apr 2010, 12:52

Dýragarðurinn
29
41%
Fiskó
15
21%
Dýralíf
0
No votes
Dýraland
4
6%
Dýraríkið
2
3%
Trítla
7
10%
Furðufuglar og fylgifiskar
2
3%
Fiskaspjall.is
12
17%
 
Total votes: 71

User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Hvaða gæludýraverslun ert þú ánægðastur/ánægðust með?

Post by Jakob »

Langaði að sjá hvaða gæludýraverslun fólki líkar best við, þegar þið kjósið hafið í huga eftirfarandi:

-Þjónusta
-Verð (á fiskum og fiskavörum)
-Gæði fiska (hvort þeir séu hraustir, éta vel og fá síður sjúkdóma)
-Hversu gaman þér finnst að koma þangað
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Ég er ekki ósáttur við neinn á þessum lista. Ég hef gert bæði góð og slæm kaup í flestum þessara verslana. Ég held samt að selja lifandi dýr er erfitt, þar sem svo margt getur komið upp á.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Ég hef gert fín kaup á öllum þessum stöðum :)

Verðið breytist og er misjafnlega gott á milli verslana
Og sem dæmi getur 1000 kr Gúppy verið betri kaup í einni verslun heldur en 500 kr Guppy í þeirri næstu því gæðin skifta öllu :wink:

Þjónustan er mismunandi
ég fæ sjaldan fullnægjandi svör við þeim spurningum sem ég spyr alveg sama í hvaða búð ég er og stundum starir fólk bara á mig þegar ég spyr
og horfir á mig eins og það hafi aldrei séð fiskanörd áður :lol:

Það er gaman að koma í allar búðir sem selja fiska
auðvitað eru búrin mismörg og úrvalið misjafnt en ef vel er gáð þá er oftast eitthvað sem er gaman að sjá

Þannig að ég get ekki kosið í þessari kosningu
en í framtíðinni verður fiskabur.is klárlega toppurinn :lol:
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

stundum kíkir maður í verslanir og hittir fiskanörda sem maður gjörsamlega rekið úr garnirnar :roll: (aðalega þegar starffsmennirnir verða þreyttir á spurningaflóðinu :) :roll:
ætlaru að byrja með Fiskabur.is aftur :P ?
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Fiskabúr.is var klárlega toppurinn í þessu öllu.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

ef ég má aðeins spjalla þá finnst mér Dýragarðurinn bestur og þar á eftir kemur fiskó, úrvalið er örugglega svipað en mér finnst þjónustan betri í Dýragarðinum og þar finnst mér þeir vera áhugasamari við að hjálpa-, ráðleggka- og útskíra fyrir manni og fúsai við að svara spurningu (Guðmundir veit eitthvað um það :lol:) (svo eru verin bara nokkuð samgjörn) É hef að vísu ekki farið mikið í hinar búðirnar en mér finns Dýragaðurinn besta dýrabúðin og vel "uppsett"

Dýragarðurinn
fín verð miðað við þjónustu og gott úrval :D
Fiskó
fín verð, lala þjónusta :-)
Dýralíf
starfsmennirnir eru nokkuð glaðlegir og gott úrval. hef lítið verslað við þá en ég er :-)
Dýraland
góð verð en ekkert svakalegt úrval LALA :?
Dýraríkið
allt of há verð og ekkert svakalegt úrval :(
Trítla
lítið úrval veit ekki meir :?
Furðufuglar og fylgifiskar
lítið úrval í verlun en fín verð held ég :?
Fiskaspjall.is viðað við það sem er hér í vefverslunni þ´´a sýnist mér þetta bara vera mjög fín verslun gott úrval og klassa-verð :D

MITT MAT ÞARF EKKI AÐ ENDURSPEGLA MAT ÞJÓÐARINNAR
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ég verð að segja eitt í sambandi við það sem guðjónb sagði

Dýraland (og Trítla) er búð sem er ekkert að stressa sig yfir því að panta inn margar tegundir,
heldur pantar bara þær tegundir sem eru auðveldar og eru auðseljanlegar.
Sem mér finnst vera mjög sniðugt.

Dýraríkið er með mjög gott úrval af fiskum
og oft eru þar tegundir sem ég hef ekki séð annars staðar.

F og F sérhæfir sig í að sérpanta fiska fyrir fólk.
Auðvitað er ekki úrval í búðinni, þar sem þau fáu búr sem eru þar,
eru notuð aðalega undir fiskana sem hafa verið pantaðir fyrir fólk.
Auk þess, þá er þetta aðalega fuglabúð, fiskarnir eru bara "með".
Ef þú kíkir á síðuna hjá honum, þá er mjög mikið úrval af fiskum þar og öðrum kvikindum.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

Hérna koma mínar skoðanir:
Fiskó-ágætist verð, ekkert spes þjónusta
Trítla-lítið úrval, góð þjónusta og gott verð
Dýraríkið-hroðalega há verð, hræðilega þjónusta
Dýragarðurinn-flott úrval, góð þjónusta, veit ekki með úrvalið
F og F-hef ekki komið þangað í ansi mörg ár svo ég veit ekki
Fiskabur.is-kom bara þangað einu sinni, en úrvalið var æðislegt
Fiskaspjall.is-hef bara enga reynslu af því
Dýraland-held að ég sé ekki alveg hlutlaus þegar kemur að því, en ég sá að þið voruð að tala um úrvalið, það er ágætis úrval af tetrum svo detta inn ein og ein fágætari tegundir
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég er sammála Elmu, fullt af tegundum sem að maður sér vanalega ekki annarstaðar, meðal annars Brochis Splenders og Chaca Chaca.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Ég var nýbyrjaður í þessum bransa þegar fiskabur.is hætti. Ég gerði góð kaup þar og allt sem ég á er þaðan. Fyrir utan einhverja fiska.

Leiðinlegt að henni skuli hafa verið lokað, engin önnur búð sem ég hef farið í kemst í hálfkvist við hana.

Þannig að gleðifréttir ef Guðmundur ætlar að byrja með hana aftur í framtíðinni. Vonandi að það verði í nánustu framtíð ;)
jæajæa
Post Reply