Hitamælirinn sprakk
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Hitamælirinn sprakk
Heyrið mig vantar smá aðstoð..
Þannig er málið að þegar ég kom heim áðan og lít ofan í fiskabúrið hjá mér þá sé ég að hitamælirinn er allur í bútum. Þannig að ég bregst skjótt við og skipti um allt vatnið og þríf allt vandlega til að forðast að allt drepist í búrinu útaf kvikasilfrinu í hitamælinum.
Hefur þetta gerst hjá einhverjum öðrum? Er möguleiki að fiskurinn hafi ráðist á mælirinn og eyðilagt hann? Er eitthvað meira sem ég get gert til að forðast að fiskurinn hafi smitast af einhverju? Hann var farinn að láta hálf einkennilega rétt áður en ég skipti um vatnið.
Þannig er málið að þegar ég kom heim áðan og lít ofan í fiskabúrið hjá mér þá sé ég að hitamælirinn er allur í bútum. Þannig að ég bregst skjótt við og skipti um allt vatnið og þríf allt vandlega til að forðast að allt drepist í búrinu útaf kvikasilfrinu í hitamælinum.
Hefur þetta gerst hjá einhverjum öðrum? Er möguleiki að fiskurinn hafi ráðist á mælirinn og eyðilagt hann? Er eitthvað meira sem ég get gert til að forðast að fiskurinn hafi smitast af einhverju? Hann var farinn að láta hálf einkennilega rétt áður en ég skipti um vatnið.
Kvikasilfur er ekki lengur notað í hitamæla þar sem það er svo eitrað, núna er notað alcahol sem þú ert búinn að þinna út með því að gera vatnskipti
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Hitari er ekki það sama og hitamælir Hann ætti þó að vera í ábyrgð ef þetta var ekki þér að kenna.magona wrote:hitamælirinn var að springa hjá mér rétt áðan. Þetta var svona 2-3 mánaða 300w. elite hitari. Frekar svekkjandi.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
HAHA! ég er hálfviti. Ég meinti auðvitað hitari. Málið er að ég veit ekki hvort að þetta hafi verið mér að kenna eða ekki. Var að gera vatnskipti... vesenvesen og rafmagnið sló út. Dró búrið frá veggnum til að kippa öllu úr sambandi. Var búin að laga rafmagnsvesenið, setja í samband og var að ýta borðinu að veggnum þegar kvikindið sprakk. Þannig að það voru alveg hlutir að ske í kringum hitarann en ekkert brútal.keli wrote:Hitari er ekki það sama og hitamælir Hann ætti þó að vera í ábyrgð ef þetta var ekki þér að kenna.magona wrote:hitamælirinn var að springa hjá mér rétt áðan. Þetta var svona 2-3 mánaða 300w. elite hitari. Frekar svekkjandi.
Tómt tjón en engin dauðsföll sem betur fer.
En já... hitaMÆLIR hefur aldrei sprungið hjá mér.
Back to topic.
AAAlgjört drama !
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Hélt að allir vissu að maður þyrfti að taka hitarann úr sambandi við vatnsskipti enda tæki sem er hannað til að vera í vatni sem kælir hann og því þolir hann ekki að vera upp úr vatninu líka ef þú hefur fengið bækling með (sem sé keypt nýtt búr, eða nýjann hitara) þá stendur það pottþétt þar alltaf að lesa bæklinga . En ég læt hitarann alltaf bíða í svona 10 mín áður en ég fer að tæma búrið svo hann nái að kæla sig niður en í t.d 400L búrinu þá bíð ég styttra þar sem það tekur smá tíma að tæma niður að hitaranummagona wrote:Það hljómar mjög sennilega. Nú jæja... Þá veit ég NÚNA að ég þarf að taka hitarann úr sambandi í vatnsskiptum og hafa hann í kafi þegar ég set hann í samband aftur. S.s. algjörlega mér að kenna.
En með hitamælinn þá eru sumir fiskar hjá mér sem finnst gaman að "narta" í hitamælinn sem sé ýta honum svona til þannig að það smellur í búrinu þegar hitamælirinn skellur í glerið en fiskarnir eru ekki nógu stórir til að gera þetta með þeim krafti sem þyrfti til að brjóta mælirinn
200L Green terror búr
Ég vissi þetta nú ekki fyrir um 2 árum, var eitthvað að gramsa og gera í búrinu í vatnsskiptum, tók þá hitarann uppúr, en hann var enn í sambandi, þegar ég setti hann aftur ofan í og hitamismunurinn var svo mikill að hann sprakk og það stór sást á mér. 2 stórir skurðir í andliti.Sirius Black wrote: Hélt að allir vissu að maður þyrfti að taka hitarann úr sambandi við vatnsskipti enda tæki sem er hannað til að vera í vatni sem kælir hann og því þolir hann ekki að vera upp úr vatninu
400L Ameríkusíkliður o.fl.