160 l Fiskabúrið mitt

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
KarenThöll
Posts: 62
Joined: 28 Dec 2009, 21:10

160 l Fiskabúrið mitt

Post by KarenThöll »

HæHæ

ég var bara að byrja með þennan fiska áhuga
og ég byrjaði með 24 l búr og fór svo upp í 160 l búr
og 160 l búrið er ennþá í vinnslu

Íbúar
1x Gullfiskur
1x Corydoras
1x Labeo bicolor
2 x Sverðdragar
2x Cospy Blágúramar
3x Guppy
6x Neon tetrur

Plöntur
1x Echinodorus bleheri
Plana að fá mér fleiri plöntur
Gotbúrið
Image
Seiðisbúrið
Image
160 l búrið
Image
Settið
Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Lítur ágætlega út, losaðu þig við gullfiskinn, hann passar ekki inn í búrið. Svo vilja gullfiskar lægra hitastig.
Fleiri plöntur í 160l búrið og kannski rót væri fallegt í búrið. :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Og kannski meira vatn? :)
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Síkliðan wrote: losaðu þig við gullfiskinn, hann passar ekki inn í búrið. Svo vilja gullfiskar lægra hitastig.
Gullfiskurinn getur vel verið með þessum fiskum nema hvað hann gæti nartað í eða étið guppana. Það er argasti misskilningur að gullfiskar þurfi lægra hitastig en aðrir fiskar þó þeir þoli vel lægra hitastig en aðrir. Gullfiskar eru td fínir í 24-26°


Ég mæli með að búrin séu fyllt af vatni og svo þarf sennilega að bæta lýsinguna eitthvað ef þú ætlar að hafa gróður í búrinu.
Annars er þetta bara efnilegt og greinilega nóg pláss fyrir fiskana.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Einnig myndi ég mæla með sterkari undirstöðu undir búrin. Mér sýnist þetta vera eins og ikea borð sem ég hef átt og ég myndi aldrei treysta því fyrir 200kg.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
KarenThöll
Posts: 62
Joined: 28 Dec 2009, 21:10

Efni

Post by KarenThöll »

HæHæ

Takk fyrir ábendingar
þegar ég er komin með betri ljós aðstæður
ætla ég að fá mér fleiri plöntur
Og ég þori ekki að setja meira vatn í búrið
Af því að ég er ekki viss hvort að borðið heldur því
og ég er að fara losa mig við gullfiskinn

Kv.Karen
KarenThöll
Posts: 62
Joined: 28 Dec 2009, 21:10

Post by KarenThöll »

ég var að spá hvað er gott hitastig í búrið?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

24-26° er fínt fyrir flesta fiska
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Vargur wrote:
Síkliðan wrote: losaðu þig við gullfiskinn, hann passar ekki inn í búrið. Svo vilja gullfiskar lægra hitastig.
Gullfiskurinn getur vel verið með þessum fiskum nema hvað hann gæti nartað í eða étið guppana. Það er argasti misskilningur að gullfiskar þurfi lægra hitastig en aðrir fiskar þó þeir þoli vel lægra hitastig en aðrir. Gullfiskar eru td fínir í 24-26°


Ég mæli með að búrin séu fyllt af vatni og svo þarf sennilega að bæta lýsinguna eitthvað ef þú ætlar að hafa gróður í búrinu.
Annars er þetta bara efnilegt og greinilega nóg pláss fyrir fiskana.
Ég var alls ekki að segja að gullfiskurinn gæti ekki verið með hinum, sem hann augljóslega getur, en það breytir því samt ekki að kjörhitastig gullfiska er á bilinu 16-20°C síðast þegar ég vissi, þó að þeir lifi góðu lífi í vatni frá 20-28°C
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Síkliðan wrote:en það breytir því samt ekki að kjörhitastig gullfiska er á bilinu 16-20°C síðast þegar ég vissi,
Kjörhitastig gullfiska í búrum er reyndar 20-23°
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Vargur wrote:
Síkliðan wrote:en það breytir því samt ekki að kjörhitastig gullfiska er á bilinu 16-20°C síðast þegar ég vissi,
Kjörhitastig gullfiska í búrum er reyndar 20-23°
Jæja, ég hef lesið hvort tveggja, treysti því auðvitað að þú hafir rétt fyrir þér. :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
KarenThöll
Posts: 62
Joined: 28 Dec 2009, 21:10

Post by KarenThöll »

Ég fékk á Laugardaginn rosa góðar Dælur og hitara frá vargi hérna á
spjallinu ,
Fékk APS 150 loftdælu,Eheim Aquaball Hreinsidælu fyrir 60 - 160 l búr og
HT 100 hitara.
Rosa flott búð sem hann er með
Mæli með henni ef þið þurfið eitthvað í fiskabúrið ykkar
User avatar
Kaladar
Posts: 63
Joined: 06 Apr 2009, 00:04

Post by Kaladar »

úff ég myndi ekki einusinni þora hafa 60lítra búr á þessu borði.
Ef þetta er umrætt Ikea borð þá vill ég benda á að þetta er ekki gegnheillviður og þar að auki eru undirstöður ekki nægjanlegar.
Ég myndi gefa þessu max 1-4daga, svo fer þetta í gólfið!

Ég grennslaðist aðeins, og ef þetta er umrætt borð þá hefur það burðargetu 30kg!
sjá: http://ikea.is/categories/497/categorie ... oducts/587
KarenThöll
Posts: 62
Joined: 28 Dec 2009, 21:10

Post by KarenThöll »

:shock: :shock:
Ætla að fá mér nýtt borð í Flýti!
Það er samt búið að halda því uppi í 3-5 mánuði
User avatar
Kaladar
Posts: 63
Joined: 06 Apr 2009, 00:04

Post by Kaladar »

KarenThöll wrote::shock: :shock:
Ætla að fá mér nýtt borð í Flýti!
Það er samt búið að halda því uppi í 3-5 mánuði
Vá það er alveg magnað að það hefur haldið svo lengi! :)
En mæli samt jú með því að þú fáir þér annað sem fyrst :P
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

góði hirðirinn gæti átt eitthvað (kannski)
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Post Reply