Lítur ágætlega út, losaðu þig við gullfiskinn, hann passar ekki inn í búrið. Svo vilja gullfiskar lægra hitastig.
Fleiri plöntur í 160l búrið og kannski rót væri fallegt í búrið.
Síkliðan wrote: losaðu þig við gullfiskinn, hann passar ekki inn í búrið. Svo vilja gullfiskar lægra hitastig.
Gullfiskurinn getur vel verið með þessum fiskum nema hvað hann gæti nartað í eða étið guppana. Það er argasti misskilningur að gullfiskar þurfi lægra hitastig en aðrir fiskar þó þeir þoli vel lægra hitastig en aðrir. Gullfiskar eru td fínir í 24-26°
Ég mæli með að búrin séu fyllt af vatni og svo þarf sennilega að bæta lýsinguna eitthvað ef þú ætlar að hafa gróður í búrinu.
Annars er þetta bara efnilegt og greinilega nóg pláss fyrir fiskana.
Einnig myndi ég mæla með sterkari undirstöðu undir búrin. Mér sýnist þetta vera eins og ikea borð sem ég hef átt og ég myndi aldrei treysta því fyrir 200kg.
Takk fyrir ábendingar
þegar ég er komin með betri ljós aðstæður
ætla ég að fá mér fleiri plöntur
Og ég þori ekki að setja meira vatn í búrið
Af því að ég er ekki viss hvort að borðið heldur því
og ég er að fara losa mig við gullfiskinn
Síkliðan wrote: losaðu þig við gullfiskinn, hann passar ekki inn í búrið. Svo vilja gullfiskar lægra hitastig.
Gullfiskurinn getur vel verið með þessum fiskum nema hvað hann gæti nartað í eða étið guppana. Það er argasti misskilningur að gullfiskar þurfi lægra hitastig en aðrir fiskar þó þeir þoli vel lægra hitastig en aðrir. Gullfiskar eru td fínir í 24-26°
Ég mæli með að búrin séu fyllt af vatni og svo þarf sennilega að bæta lýsinguna eitthvað ef þú ætlar að hafa gróður í búrinu.
Annars er þetta bara efnilegt og greinilega nóg pláss fyrir fiskana.
Ég var alls ekki að segja að gullfiskurinn gæti ekki verið með hinum, sem hann augljóslega getur, en það breytir því samt ekki að kjörhitastig gullfiska er á bilinu 16-20°C síðast þegar ég vissi, þó að þeir lifi góðu lífi í vatni frá 20-28°C
Ég fékk á Laugardaginn rosa góðar Dælur og hitara frá vargi hérna á
spjallinu ,
Fékk APS 150 loftdælu,Eheim Aquaball Hreinsidælu fyrir 60 - 160 l búr og
HT 100 hitara.
Rosa flott búð sem hann er með
Mæli með henni ef þið þurfið eitthvað í fiskabúrið ykkar
úff ég myndi ekki einusinni þora hafa 60lítra búr á þessu borði.
Ef þetta er umrætt Ikea borð þá vill ég benda á að þetta er ekki gegnheillviður og þar að auki eru undirstöður ekki nægjanlegar.
Ég myndi gefa þessu max 1-4daga, svo fer þetta í gólfið!