Jæja... kominn tími á að ég geri þráð um búrin mín þrjú.
54 lítra juwel búr:
gúbbí og rækjur. (bumblebee og amano)
Grein úr blómavali, hraun frá Vestmannaeyjum og einhverjar plöntur.
*************************
240 lítra rugl búr:
3 SAE
1 slör skali
1 hvítur segl molly
2 brúsknefar
1 bardagafiskur kk
3 platy
1 balahákarl ca 10cm
1 gibbi ca 18cm
2 eplasniglar
3 perlugúramar
og síðast en ekki síst uppáhaldið: 1 bleikur óskar ca 12 cm.
jaríjaríblabla plöntur.
*******************
17 lítrar:
eitthvað af rækjubabies
sinugrein frá blómavali og anabusi.
Last edited by magona on 02 Feb 2010, 18:22, edited 2 times in total.
Þetta er venjulegur bambus úr ikea. Hann hefur það mjög fínt. Er mikið fyrir að gera svona plöntutilraunir, er m.a. með hiasintu í 240l. búrinu. Setti hana þar í gær, sé hvernig hún braggast.
Ein skalamynd. Glittir í balahákarlinn fyrir aftan.
edit: note to self. verð að muna að slökkva öll óþarfa ljós áður en ég set mig í myndastellingar.
Getur það verið að molly-inn viti kynið á óskarnum mínum? Hann er alltaf að reyna við óskarinn.
Annars ætla ég að slútta 17l búrinu. Sem er synd því það er eina búrið sem ég er virkilega ánægð með. En ég nenni ómögulega að vera með 3 búr.
Eitthvað er búið að vera um dauðsföll í 54l búrinu. Cory lést af sárum sínum og annar gúbbíkarlinn er horfinn. Varð sennilega rækjusnakk. Fyrsti gúbbíinn minn.
Versta er að þegar það verða svona dauðsföll hjá mér þá fer ég alltaf í fýlu og vil jafnvel hætta þessu fiskaveseni. Er svo dramatísk.
Gerði vatnskipti og er búin að vera að dunda mér við það að færa rækjur úr smábúrinu í 54lítrana. Ætla samt að bíða aðeins með að færa baby-in.
Guppy karlinn minn er líka búin að vera rosa mikið utan í einni sverðdraga konuni og hún er búin að fitna rosa og það er engin sverðdraga kall í búrinu
Miklar breytingar í gangi fisklega séð. Keypti 3 kerlingar fyrir gúbbíkarlinn sem ég átti eftir. Ein gaut stuttu eftir að ég fékk hana og sat ég á stól með hökuna á borðinu í klukkutíma að fylgjast með henni. Fékk hálsríg en tótallí vörþ it!
Keypti nýja peru í 54l búrið og gróðurinn er alveg að fíla það.
Gullskalinn minn drapst og fleiri fiskar voru hálf laslegir í stóra búrinu þannig að ég skrapp til Vargs og keypti eitt stk. hitara í staðinn frir þann sem ég sprengdi. Þessi laslegu eru orðnir núna hressir en hins vegar hefur óskarinn ekki viljað borða neitt að ráði í dag. Er að reyna að lesa ekki mikið í það. Þannig hef ég misst 2 skala. Þeir missa lystina og veslast upp. Ráð vel þegin.
Missti vitið og keypti mér 3 perlugúrama og setti í stóra búrið. Ekki voða gáfulegt því að veikin gæti ennþá verið í gangi en ég krossa bara putta.