Skýað vatn , bakteríu blómi

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Skýað vatn , bakteríu blómi

Post by Bambusrækjan »

Málið er að ég er með tiltölulega ný uppsett búr. Búrið á að vera full cyclað þ.e.a.s nógu mikið af bakteríum til að brjóta niður NH3 og No2. Hins vegar gerðist það í lok hringrásarinnar að vatnið varð skýjað . Svona hvítt mistur, sem ég hef svo sem lent í áður. En það sem er í gangi hjá mér núna er að þetta lagast bara ekkert :P Ég var að velta fyrir mér hvort einhver hérna hafi lent í að búr hjá þeim hafi verið skýjað í all langan tíma ? Og hvort það væru einhver trikk til að losa sig við þetta ? .. Ég hef verið að gera ca 60% vatnsskipti vikulega og minnkað fóðrun og fjarlægt öll fölnuð lauf af plöntum í búrinu. En það er enn skýjað er er búið að vera þannig í ca 3 vikur.
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Ertu búinn að prufa myrkvunar-aðferðina. Þ.e. að hafa slökkt ljósin og skella teppi yfir búrið í 3-4 daga??
jæajæa
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Líklegast of stór vatnskipti, hvað er í búrinu ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
brundus
Posts: 117
Joined: 19 Jan 2010, 00:20
Location: 270 mosó

Post by brundus »

eg er einmitt að lenda i þvi sama en skiptir svaðalega litlu fyrir mig þarsem eg er að fara að skipta um búr en fiskurin virkar svakalega dasaður utaf þessu en vona að það lagist i nyja búrinu
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Fanginn wrote:Ertu búinn að prufa myrkvunar-aðferðina. Þ.e. að hafa slökkt ljósin og skella teppi yfir búrið í 3-4 daga??
Er það ekki bara ef vatnið er grænt ??...

Annars er ég með regnbogafiska , plöntur og rætur í búrinu. Á ekki að vera ofstockað.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég fékk þetta einhverntíman eftir vatnsskipti í nýlega uppsettu búri, ég gerði ekki neitt og þetta hvarf á 3 dögum.
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

jamm, ég hef lent í skýjuðubúri allt upp í viku, en þetta er er að verða vandræðalegt :roll:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég er í svipuðum málum... Skötubúrið hjá mér er búið að vera skýjað í 1-2 mánuði. Mig grunar að það sé hikari fóðrinu sem ég er að gefa að kenna.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

vatnið í burinu hjá frænku minni varð hvítt fyrstu dagana eftir að ég setti það upp,
hafði ekki lent í þessu áður.. prófaði að skipta vel um vatn á 2ja daga fresti en þetta varð bara verra,
svo prófaði ég að gera ekki neitt,
myrkvaði bara búrið og þetta fór á held ég fjórða degi.

málið er að ef það er skipt um vatn,
þá fá þessar "bakteríur" alltaf nýja og nýja næringu með nýja vatninu.
En ef það er látið vera og það er ekkert skipt um vatn,
þá þurrausa bakteríurnar næringarefnin úr vatninu og drepast úr næringarskorti.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
sbe2
Posts: 95
Joined: 18 Oct 2009, 16:02
Location: Akranes
Contact:

Post by sbe2 »

Ég er að lenda í þessu sama. Ég setti upp búrið mitt fyrir viku síðan og er einu sinni búinn að gera 60% vatnaskipti. Það er ennþá svona skýjað. Ég var með slökkt og breitt yfir búrið alla helgina en þetta lagaðist ekki neitt. Er þetta bara spurning um að vera þolinmóður eða lumiði á einhverju öðru trixi??
500l. Ameríku siklíður
180l. Malawi siklíður
30l convict seiði

http://sbe2.blogspot.com
mikki
Posts: 20
Joined: 23 Aug 2009, 20:22

Post by mikki »

Er buinn að lenda i þessu 2 eftir storu vatskipti. þetta hvarf hja mer eftir 2 daga og eina sem eg gerði var að hætta að gefa fiskum að eta a meðan.
Post Reply