Ljósmyndakeppni - febrúar

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply

Besta myndin?

Poll ended at 01 Mar 2010, 00:04

Mynd 1
0
No votes
Mynd 2
13
19%
Mynd 3
3
4%
Mynd 4
17
25%
Mynd 5
5
7%
Mynd 6
16
23%
Mynd 7
15
22%
 
Total votes: 69

User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Ljósmyndakeppni - febrúar

Post by Andri Pogo »

Kosning fyrir bestu mynd febrúarmánaðar.

Kosning verður opin til mánaðarmóta.
Allar umræður um einstaka myndir afþakkaðar þar til kosningu er lokið.
Fólk er hvatt til að skoða myndirnar vel áður en það kýs.


Mynd 1 Image


Mynd 2 Image


Mynd 3 Image


Mynd 4 Image


Mynd 5 Image


Mynd 6 Image


Mynd 7 Image
Last edited by Andri Pogo on 01 Mar 2010, 19:00, edited 1 time in total.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

damn, gleymdi að senda mynd. :?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Margar fínar myndir núna.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Vá hvað er erfitt að velja, aldrei verið svona margar flottar myndir í einni keppni!
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Styttist í lok keppninnar! kjósa kjósa
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Maris
Posts: 27
Joined: 15 Oct 2009, 00:29
Location: Kópavogur

Post by Maris »

Er með valkvíða!
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Til hamingju mynd 4 !

nú þegar kosningu er lokið eru umræður velkomnar.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Með fullri virðingu fyrir sigri myndar 4 þá finnst mér mynd 5 og 6 yfirburða betri ljósmyndalega séð. Myndin er ekki skýr, þó að það sé flott hvernig ljósið fellur á fiskinn.

Með þessu áframhaldi finnst mér að stjórnendur ættu að velja um hvaða mynd sigri keppnina.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

en þá væru ekki nema kannski 2-4 myndir í hvert sinn og alltaf sama fólkið sem á mynd.
Því það eru ekki nema örfáir sem eru að setja myndir hérna inná sem virkilega geta sagt að þeir séu að taka góðar myndir (ljósmyndalega séð)
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Síkliðan wrote:Með fullri virðingu fyrir sigri myndar 4 þá finnst mér mynd 5 og 6 yfirburða betri ljósmyndalega séð. Myndin er ekki skýr, þó að það sé flott hvernig ljósið fellur á fiskinn.

Með þessu áframhaldi finnst mér að stjórnendur ættu að velja um hvaða mynd sigri keppnina.
Þú ert eins og geldingur í kvennabúri, getur sagt öðrum hvernig á að gera en getur það bara ekki sjálfur.
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=9410

Besta myndin þykir mér mynd nr 2, eina er að lýsingin mætti vera betra.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Vargur wrote:
Síkliðan wrote:Með fullri virðingu fyrir sigri myndar 4 þá finnst mér mynd 5 og 6 yfirburða betri ljósmyndalega séð. Myndin er ekki skýr, þó að það sé flott hvernig ljósið fellur á fiskinn.

Með þessu áframhaldi finnst mér að stjórnendur ættu að velja um hvaða mynd sigri keppnina.
Þú ert eins og geldingur í kvennabúri, getur sagt öðrum hvernig á að gera en getur það bara ekki sjálfur.
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=9410

Besta myndin þykir mér mynd nr 2, eina er að lýsingin mætti vera betra.
Hvað meinaru með þessu eiginlega? Myndirnar tvær sem að ég nefndi voru bara dæmi, 2 er líka mjög góð.
Ég sagði EKKI að mínar myndir væru góðar, og veit fullvel að þær eru það ekki. Og óþarfi og varla bjóðandi að þú bendir svona á það til þess engöngu að rakka mig niður.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Til lukku nr 4 skemmtilegt hvernig ljósið og skugginn leika sér þarna
fiskurinn í ágætri stellingu hefði verið gaman ef fókusinn hefði verið á hausinn

Mynd 1 myndin hefði mátt vera bjartari þá nýtur fiskurinn sín betur
lítið að gerast í myndinni en umhverfið gæti reddað því ef það sæist

Mynd 2 skemmtilegt augnablik, vantar aðeins á fókusinn

Mynd 3 fín nærmynd hefði verið gaman að sjá neðri uggan alveg
fókusinn mætti vera ofar, það er erfitt að taka mynd af hvítum fisk því hann brennur í ljósi og flassi eins og sést á búk og haus

Mynd 5 Besti fókus í keppninni myndin mætti vera stærri eins og hinar það hefði eflaust gefið henni nokkur auka atkvæði, þótt myndin sé mjög skír og góð er samt lítið annað í gangi á myndinni og það gæti dregið hana niður

Mynd 6 skemmtilegur bakgrunnur sem nýtur sín vel á myndinni fiskurinn er vel staðsettur, ég held að hann hefði notið sín betur ef meira hefði verið tekið neðan af myndinni, vantar kannski smá skerpu í fiskinn til að vega upp á móti bakgrunninum

Mynd 7 skemmtilegt móment mikið að gerast en myndin er tekin of hægt og virðist því hreyfð ef birtan hefði verið meiri og myndin tekin hraðar hefði hún verið mjög fín, flass hefði skilað fremsta fiski tærum í fókus

Þeir sem þola gagnrýnina læra vonandi eitthvað af henni
en hinir verða bara að blóta mér :lol:
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

össs, össs, össs.

Bara karlhormón komin á flug. :P

Held að það sé óþarfi að fara að æsa sig yfir ljósmyndakeppninni :)

Ég er heldur ekki sátt með mynd númer fjögur,
en ég setti hana bara inn því að hún varð mjög vinsæl hjá mér á flickrinu mínu
og vildi athuga hvort ég fengi sömu viðbrögð á fiskaspjallinu.
og já, mér fannst líka skemmtilegt hvernig ljósið lendir á honum :P

Image
ætlaði að senda inn þessa t.d.

mér finnst mynd númer þrjú mjög skemmtileg, falleg tetra.
Og mynd númer sjö er töff.

En takk, takk fyrir atkvæðin og til hamingju myndir sem lentu í 2. og 3ja sætinu.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

þessi er miklu flottari Elma
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hahaha :lol:

já ég veit!
en ég er alltaf svo óákveðin hvaða myndir ég á að setja í ljósmyndakeppninar og afþví að hin fékk svo mikil hint á flickrinu,
þó að það vantaði fókusinn, þá bara" æj.. ég prófa bara"

ætla að reyna að velja betur næst.. vonandi..
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
pjakkur007
Posts: 311
Joined: 02 Feb 2010, 21:53
Location: Tálknafirði
Contact:

Post by pjakkur007 »

humm!!

til hamingu mynd 4 flott mynd mætti vera með dýpri fókus eða hreinlega macro mynd með fókusinn á hausinn

Personulega valdi ég mynd 6 vegna þess að hún er skýr og vel tekin svo er flott samspil milli skuggana og brúna litsins í henni, hún er hérum bil öll í fókus og mjög flott mynd

mynd 2 finst mér einnig mjög flott en þar er sama fókus vandamálið og svo er mikið til mun minna ljós á annan fiskinn þó ég geri mér vel grein fyrir því að það er eitthvað sem er erfitt að eiga við
20L humarbúr

54L guppy og tetru

120L lemon tetru, SAE og Ancirstur

54L Siklíðu bastarðar

450L Gullfiskabúr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ég á mynd 2 og þakka góð orð og gagnrýni, ég var fyrst að spá í að klippa myndina og nota bara fiskinn sem var í betri fókus en það var ekki jafn spennandi.

ég man satt best að segja ekki hvort ég kaus 4 eða 6, 4 er mikið skýrari en 6 finnst mér skemmtilegari...
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Guðmundur hittir vel á þetta, ég held að það sé best að Guðmundur verði sérstakur gagnrýnandi á myndirnar að keppni lokinni.

Annars held ég að allir megi vel við una, 4 fínar myndir sem allar eru mjög jafnar. Ég held að þátttakendur séu að koma til í myndatökum og spjallverjar í vali á mynd til að gefa atkvæði sitt.
User avatar
Salvini
Posts: 102
Joined: 18 Feb 2010, 04:02
Location: Vestfirðir

Post by Salvini »

Til lukku nr.4! Gaman að sjá hvað munar litlu í atkvæðum á milli bestu myndanna. Ég ætla að sleppa allri gagnrýni, en vil að það komi fram að mér finnst mynd nr. 7 vera áhugaverðust.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Vargur wrote:Guðmundur hittir vel á þetta, ég held að það sé best að Guðmundur verði sérstakur gagnrýnandi á myndirnar að keppni lokinni.

Annars held ég að allir megi vel við una, 4 fínar myndir sem allar eru mjög jafnar. Ég held að þátttakendur séu að koma til í myndatökum og spjallverjar í vali á mynd til að gefa atkvæði sitt.
ég skal gagnrýna eftir hverja keppni ekkert mál
skal reyna að vera uppbyggjandi það gæti aukið gæðin hjá þeim sem eru að reyna að gera betur
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Post Reply