Veiki í gangi í búrinu

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Veiki í gangi í búrinu

Post by LucasLogi »

Breytti óvart fyrsta póstinum enn hérna er hvernig þetta lýsir sér.

Ég er með um 15 guppy og 30 guppy seiði sem eru um viku og tveggja vikna gömul. Fiskarnir eru mjög slappir og hanga annaðhvort á botninum og hreyfa sig ekki eða eru allveg í yfirborðinu eins og þeir séu að leita eftir súrefni. Það eru 2 búnir að drepast og ég hef tekið 2 uppúr sem hafa verið veikir og við það að deyja.

Það sést samt ekkert líkamlega á þeim að þeir séu veikir.

Búrinu var startað fyrir um 3 mánuðum og hef ég gert regluleg vatnaskipti og passað að þrífa dæluna líka. Geri það samt aldrei bæði í einu.

Hafið þið hugmynd um hvað þetta gæti verið?

Kveðja Lucas
Last edited by LucasLogi on 20 Mar 2010, 21:54, edited 2 times in total.
60l guppy
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

Byrja á að skipta um ca 50% af vatni og sjá hvort það hressi þá ekki soldið við.
Svo er spurning að setja loftdælu í búrið því ef fiskarnir eru uppvið yfirborðið gæti það þítt að það vanti súrefni í búrið
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

Það er loftdæla í búrinu svo skipti ég um 50% vatn í gær. Það eru fjórir búnir að drepast á stuttum tíma núna kannski tveim sólahringum. Það eru líka um 30 lítil seiði í gotbúri sem virðast vera allveg spræk enþá.
60l guppy
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

hækka hitann og salta smá
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
Fiskurinn
Posts: 271
Joined: 11 Jun 2007, 12:37

Re: Veiki í gangi í búrinu

Post by Fiskurinn »

LucasLogi wrote:Hitinn er í 23 gráðum hvað ætti ég að setja hann uppí?
Það væri ekki verra að fá nákvæmari upplýsingar í sambandi við einkenni. Til að fá hnitmiðari svör er það allavega byrjunin á "greiningu", til að sporna við eihverjum bull ráðleggingum. Salt og hækka hita er mjög oft alls ekki nóg. Séu fiskarnir í salti almennt, þá geta þeir myndað þol fyrir saltböðun/saltvatni. Nái sníkjudýrin að þrífast í búrinu hjá þér með salti fyrir, þá þarf oft að lyfjabaða heila gallerýið.
Sportið snýst um vatn, Heldurðu vatninu góðu,þá heldurðu lífi í vatninu..!
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

Það virðist eitthvað hafa ruglast hjá honum því það var alveg ágætis lýsing á því hvað var að gerast í búrinu hjá honum.
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
Fiskurinn
Posts: 271
Joined: 11 Jun 2007, 12:37

Post by Fiskurinn »

LucasLogi wrote:Það er loftdæla í búrinu svo skipti ég um 50% vatn í gær. Það eru fjórir búnir að drepast á stuttum tíma núna kannski tveim sólahringum. Það eru líka um 30 lítil seiði í gotbúri sem virðast vera allveg spræk enþá.

Stebbi:
Þetta kalla ég ekki greinagóða lýsingu. þarf ég Kannski að lesa þetta eitthvað betur?
Sportið snýst um vatn, Heldurðu vatninu góðu,þá heldurðu lífi í vatninu..!
User avatar
pjakkur007
Posts: 311
Joined: 02 Feb 2010, 21:53
Location: Tálknafirði
Contact:

Post by pjakkur007 »

nei það sem stebbi er að meina er að það er einsog það vanti fyrstu innleggin í þráðinn
20L humarbúr

54L guppy og tetru

120L lemon tetru, SAE og Ancirstur

54L Siklíðu bastarðar

450L Gullfiskabúr
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

einmitt, í fyrsta póstinum kom fram fiskafjöldi, búrstærð og hvernig einkennin voru.
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
Fiskurinn
Posts: 271
Joined: 11 Jun 2007, 12:37

Post by Fiskurinn »

:o
Sportið snýst um vatn, Heldurðu vatninu góðu,þá heldurðu lífi í vatninu..!
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Þú ert nú meiri Fiskurinn :shock: . Getur líka látið mæla fyrir þig vatnið t.d í Fiskó, ef þú átt ekki svoleiðis eða keypt. Ef þetta er út af slæmum vatnsgæðum þá gagnar hitahækkun og salt ekki neitt, hærri hiti þýðir t.d. minna O2. Og ef þú gerir vatnsskifti ryksugaðu þá sandinn í leiðinni. Það er ekki óeðlilegt að fiskar haldi áfram að drepast út af slæmum vatnsgæðum eftir 1 vatnsskifti í.þ.m.
Last edited by animal on 21 Mar 2010, 16:35, edited 1 time in total.
Ace Ventura Islandicus
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

animal wrote:Þú ert nú meiri Fiskurinn :shock: . Getur líka látið mæla fyrir þig vatnið t.d í Fiskó, ef þú átt ekki svoleiðis eða keypt. Ef þetta er út af slæmum vatnsgæðum þá gagnar hitalækkun og salt ekki neitt, hærri hiti þýðir t.d. minna O2. Og ef þú gerir vatnsskifti ryksugaðu þá sandinn í leiðinni. Það er ekki óeðlilegt að fiskar haldi áfram að drepast út af slæmum vatnsgæðum eftir 1 vatnsskifti í.þ.m.
ætla að redda mér svona mæliskikum. Það sem mér finnst skrítið við þetta er að seiðin eru ekki enþá farin að drepast, hélt að þau væru viðkvæmust fyrir öllu svona.
60l guppy
User avatar
pjakkur007
Posts: 311
Joined: 02 Feb 2010, 21:53
Location: Tálknafirði
Contact:

Post by pjakkur007 »

það er eitt sem mér dettur í hug

þegar þú ert að gera vatnsskipti er þá mikið af loftbólum í vatninu?

ég lenti í því um daginn að þegar ég skipti um vatn í einu af mínum búrum varð vatnið sem ág setti í búrið nánast því hvítt af örsmáum loftbólum og fiskarnir ruku allir uppundir yfirborðið og héldu sig þar!!!

það sem ég gerði var að minka kraftinn á slöngunni og láta vatnið renna í gegnum 2.L flösku sem ég risti eftir endilöngu á 2 stöðum til að skilja loftið frá vatninu
20L humarbúr

54L guppy og tetru

120L lemon tetru, SAE og Ancirstur

54L Siklíðu bastarðar

450L Gullfiskabúr
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

pjakkur007 wrote:það er eitt sem mér dettur í hug

þegar þú ert að gera vatnsskipti er þá mikið af loftbólum í vatninu?

ég lenti í því um daginn að þegar ég skipti um vatn í einu af mínum búrum varð vatnið sem ág setti í búrið nánast því hvítt af örsmáum loftbólum og fiskarnir ruku allir uppundir yfirborðið og héldu sig þar!!!

það sem ég gerði var að minka kraftinn á slöngunni og láta vatnið renna í gegnum 2.L flösku sem ég risti eftir endilöngu á 2 stöðum til að skilja loftið frá vatninu
:rofl:

við erum semsagt að drepa laxa seyðin þegar við hendum keramic loftsteini teigndan lofti oní körin til að ná súrefninu upp?
koma svona micro loftbólur.

frekar verið teignt hitastigi eða eithverju svipuðu?
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Það kemur alveg svakalega mikið af loftbólum hjá mér í vatnaskiptum og ekkert amar að fiskunum mínum þrátt fyrir það..
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
pjakkur007
Posts: 311
Joined: 02 Feb 2010, 21:53
Location: Tálknafirði
Contact:

Post by pjakkur007 »

Prufaðu að yfir metta vatnið af súrefni í laxakörunum hjá þér ulli og sjáðu hvernig laxaseiðinn þín bregðast við :hehe: :twisted:

ef þú ert að vinna í laxeldi ættiru að vita að ef þarf að keyra súrefni á körin hjá þér eru körinn yfirfull af fiski

60L búr með 45 guppy er enganveginn yfirfullt af fiski
20L humarbúr

54L guppy og tetru

120L lemon tetru, SAE og Ancirstur

54L Siklíðu bastarðar

450L Gullfiskabúr
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

teingist all hitastigi stressi birtu og hreinlætis.
það er slæmnt þegar súrefnið fer niður fyrir 5 mg per líter fínt svona 7-8 mg líter.

hef séð það fara uppi 15+ mg per líter án þess að það hafi nein áhrif á fiskinn.

þegar fiskur leitar uppí yfirboðið þá er það yfirleitt vegna súrefnisskorts eða hitastigs breitingum.

stórlega efast um að það sé hægt að yfir metta fiskabúr við það eitt að láta renna í það úr krananum.nema þú hafir verið að nota brunarhanan úti :P

oft þegar það er verið að dæla fisk á milli kara þá stressast hann upp og þarf þá bæði að kæla á karinu og bæta súr úttí.

það er orðið ansi slæmnt ef það þarf að vera sírensli af súr alltaf í karið.
annars ef þú vilt eithvað vera ræða um laxeldi þá er annar dálkur sem kallast almennar umræður,getum spjallað um það þar
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

Það hefur ekkert drepist í tvo daga eða eftir að ég setti white spot control útí vatnið. Það sem ég var að spá í hvort þetta hafi verið hvítblettaveiki eða eitthvað álíka, það samt sást ekkert á fiskunum

Vitið þið hvort þetta white spot control virki á aðra sjúkdóma?
60l guppy
Post Reply