Við erum með gullfisk sem er kominn með einhvern skrítinn hvítan hnúð á hliðinni. Einhverjar hugmyndir um hvað þetta er og hvort eitthvað sé hægt að gera? Fiskurinn virðist hegða sér eðlilega, enginn slappleiki eða þessháttar.
Hér er skásta myndin sem ég náði af þessu, vöxturinn/bólan/hnúðurinn sést ágætlega á vinstri hliðinni svona séð ofan frá..
eg atti svona gullitaðan sem fekk sma hvitan blett 3 árum seinna alkvitur 4 árum seinna steindauður! held það hafi sammt voðalega litið komið hvítleikanum við
Fiskurinn er enn sprækur sem lækur (ha.. ha.. ) og þetta minnkaði mikið á 1-2 dögum eftir að ég póstaði hérna og stendur ekki nærri eins langt út og það gerði fyrst. Og við höfum ekki séð neina breytingu á þessu núna í nokkra daga.
Semsagt virðist bara vera í fínu lagi.. takk fyrir svörin!!