Vargsbók

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Alment eiga Afríkusikliður nokkuð gott með að aðlagast breittum aðstæðum en stórar og örar sveiflur í vatnsgæðum geta verið slæmar fyrir fiskana. Innviði búrsins held ég að skipti ekki stórmáli, það er frekar sýrustig og harkan í vatninu.
Í flestum tilfellum er þó ekki ráðlagt að blanda þessum fiskum saman þar sem atferli þeirra er það ólíkt.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Jæja þar kom að því. Það sprakk gler í einu búri hjá mér áðan. Búrirð er 100 lítra og staðsett í kompunni hjá mér. Þegar glerið sprakk vildi svo skringilega til að ljosið datt ofan í búrið þannig rafmagnið sló út.
Það vildi svo heppilega til að ég var nýkominn heim þannig hreinsunarstörf hófust strax og því líklegt að fólkið á neðri hæðinni líði ekki fyrir þetta.

Búrið er heimasmíðað og glerið sem sprakk er á langhlið og ástæðan sennilega að ég var með allt of mikið vatn í búrinu en það var nánast fullt uppí topp vegna klaufaskapar í síðustu vatnsskiptum.

Í búrinu var convict par sem lifði hrakfarirnar af
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

úff . lán að ekki fór verr ..

var þetta búr fyrir neðan skóflunebba ? eða þar megin ?

er ekki bara gólfið farið að síga undan öllum þunganum ? og vatnið að þrýstast fram ? :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta var búr sem var á gólfinu(frauðplast undir) hinu megin.
Það er nú sæmilegasta steypa held ég í húsunum hér í voginum kendum við gröf og engar sprungur í gólfinu ennþá, annað en sum húsin í gettóinu sem eru ekki meira traust en svo að íbúarnir þori ekki að setja upp fiskabúr í stærri kantinum. :D
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Er þetta ekki bara eins og með mótorhjólin, það er ekki spurning hvort þú dettir, heldur hvenær?
Ég er auðvitað ekki að meina "eðlilegt" fólk sem er "bara" með 1 eða 2 búr, heldur brjálæðinga sem eru með 10-20 :P

Flott að Convict parið skyldi lifa hremmingarnar af.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bætti einu búri í safnið í dag, um er að ræða ágætlega útlítandi heimasmíðað 500 l búr.
Nú þarf ég að koma því fyrir og græja stand og ljos osf.
...og ákveða hvað fari í það.
Sennilega verða það Óskararnir, stóra convict parið og firemoth par.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

500 l búrið komið upp og fiskar í það. Reyndar þori ég ekki að stútfylla það strax, ég ætla að styrkja standinn aðeins og setja langstífur (longbraces) innan í búrið að ofanverðu.
Óskararnir og convict kerling fóru í búrið í gærkvöldi ásamt Synodontis petricola, ég bætti svo við í dag Geophagus brasiliensis (earth-eater)pari úr fiskabur.is, þar sem allir fiskarnir eru nýjir í búrinu fá þeir að vera í friði.
Það er kostulegt að fylgjast með Geophagus þegar þeir skófla upp í sig fína sandinum sem er í búrinu, japla á honum og skyrpa út úr sér, ágætis hreinsi crew. :)

Image
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

þú ert nú ekki lengi að setja búr upp :)

rosalegt flottur þessi á mynd , til hamingju með nyjan búrið
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

He he, í gær tæmdi ég alveg og færði tvö búr 160 og 250 lítra, setti annað upp aftur með fiskum en bara vatn í hitt. Ég nánast tæmdi annað 240 l búrið, færði það og breytti slöngum á tunnudælunni og þreif hana. Setti upp 500 l búrið og þreif það og tengdi tunnudælu.
Semsagt fjögur búr færð til, allir fiskar úr þremum þeirra, öll búr uppsett aftur. Ég á reyndar eftir að klára 500 l búrið, bæta við sandi og raða eitthvað betur í það osf. :wink:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bætti í gær í safnið í 500 l Ameríkubúrið pari af Hypsophrys nicaraguensis. Kerlingin er frekar smá og ég hafði smá áhyggjur af því að hún yrði fyrir aðkasti í búrinu. Það leið ekki langur tími þangað til ég sá í sporðinn á henni útúr einum Óskarnum. Ég náði að veiða hana útúr honum og setti í sér búr, hún var ansi skelkuð en er í fínu formi í dag. :?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bætti við nokkrum fiskum.
Tropheus duboisi, 3 stk, ég vona að þeir drepi ekki hvorna annan, það er mælt með að þeir séu í stórum hóp til að dreyfa álaginu en þar sem ekki voru fleiri til í búðinni þá verður maður bara að vona það besta þangað til fleiri koma.
Placidochromis electra, 3 stk.

Hér eru myndir af samskonar fiskum.
Image
Duboisi.

Image
Electra.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Tropheus eru virkilega fallegir fiskar, en ég mundi fara varlega með þá. Það er mælt með að hafa þá eina í búri og þá helst bara eina tegund af þeim (stóran hóp). Allavega eru þeir með alveg svakalega viðkvæm meltingarfæri og ekki má offóðra þá og alls ekki gefa þeim mikið prótein. Held að þetta séu með þeim viðkvæmustu síkliðum sem til eru, allavega vandmeðfarnar. En vonandi gengur þetta hjá þér með þá, allt í lagi að prófa hluti. :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er eimmitt málið. Ég hefði viljað fleiri vegna þess en þetta voru þeir síðustu. Duboisi er reyndar einn skástur af Trophusunum og hef ég heyrt af mönnum sem hafa haft allt niður í 5 stk vandræðalaust. Ég ætla samt að panta 10 stk í viðbót.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bætti við í dag einu framtíðar skrímsli, channa orientalis (snakehead) og nokkrum sikliðum, Cynotilapia afra coube og Dimidiochromis compressiceps (Malawi eye biter).

Hér eru myndir af samskonar fiskum.
Image
Channa.

Image
Image
compressiceps.

Image
Afra coube.
Last edited by Vargur on 04 Nov 2006, 18:39, edited 1 time in total.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

hvar eru myndirnar af 500 ltr drengur ? ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

500 l búrið er ekki alveg klárt, ég á eftir að bæta í það sandi osf og er ekki búinn að styrkja standinn þannig það er bara hálffullt af vatni. Ég drattast í þetta í vikunni.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Smá afföll í dag.
Duboisi hafa verið að hætta störfum og sá síðasti sagði upp í morgun, þeir eru sennilega ekki að þola breytingarnar og voru eitthvað ragir í búrinu þrátt fyrir að vera bara með minni fiskum. Ég tek þá sennilega 10 stk($$$ :? ) af þeim í næstu sendindingu fiskabur.is og vona það besta.
Channan tók svo upp á því að stökkva upp úr búrinu og endaði líf sitt við útidyrahurðina.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

það rignir ekki endalaust.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Slæmt að heyra, ætlarðu að fá þér aðra Chönnu eða láta þetta duga?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þú ert nú aldeilis búinn að vera duglegur að bæta við hjá þér tegundunum drengur.
Hvernig gengur með Tropheus?
Glæsilegar þessi fiskur, electra.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég náði í nýja chönnu strax í dag (þá er bara ein eftir í búðinni), Tropheus Duboisi eru allir farnir til feðra sinna.

Já ég er búnn að vera duglegur að bæta við mig tegundum, það er gaman að halda áhuganum í hámarki með því að breyta eitthvað. Maður setur bara sumar tegundir í bið á meðan.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Leitt með Tropheus.

Ég er einmitt búin að einsetja mér að bæta ekki við fleiri búrum hjá mér, a.m.k. í bili. Nema þá einhverju stóru, 500 ltr. eða stærra :lol: Annars væri ég örugglega alltaf að prófa eitthvað nýtt.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég reif allt upp úr öðru 240 l búrinu til að ná saulosi kerlingunum sem voru með seyðin uppi í sér, tók reyndar alla saulosi og setti í sér í 130 l búr þar sem verður auðveldara að ná þeim þar sem ég hef áhuga á að ná slatta af seyðum undan þeim.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég setti loks vatn upp í topp á 500 l búrinu, það lítur aðeins betur út núna. þá er bara að kaupa einhver ljós ofan á það svo ég geti myndað það. Svo á ég reyndar eftir að koma í það meiri sandi og einhverjum gróðri hugsanlega, svo þarf ég að hafa augun opin fyrir einhverjum háum rótum, ef einhver dettur niður á stórar rætur, þá endilega láta mig vita.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

fór í fiskabúr.is og fannst ég kannast við nokkra óskara þar. ertu búinn að fækka mikið ? ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég lét tvo fara, einn lutino og einn rauðbrúnan.
Bætti svo við einum tiger ca 20 cm.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Voru einhver vandræði með þá??
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Nei, nei, þetta voru algerir englar en ég átti tvo hvíta og þrjá rauðbrúnan og ætla mér að eiga helst bara einn í hvorum lit.
Núna er ég með einn lutino, tvo rauðbrúna og tvo tiger.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hraðmynd af nýja Óskarnum.

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bætti við mig tveimum kattfiskum í dag, hinum bráðfyndnu Asian upside down catfish eða Mystus leucophasis eins og þeir heita víst.
Eins og nafnið gefur til kynna þá synda þeir á hvolfi, þeir kunna best við sig við yfirborðið í flotgróðri og þessháttar og eru þá kærkomin viðbót í kattfiskahópinn þar sem þeir eru sjáanlegri en flestir félagar þeirra sem vilja helst híma í felum mestallann daginn.

Image
Post Reply