Óskarinn minn heldur áfram að stækka þó að ég hafi verið að vonast til þess að hann væri hættur. Hann er rúmlega 17cm núna. Ég er nýbúin að minnka búrstærð niður í 180 lítrana. Spurningin er sú hvort þið haldið að honum líði illa, hvort að 180 lítrarnir dugi fyrir hann eða hvort að ég þurfi að stofna styrktarreikning eða eitthvað fyrir stærra búri?
Vanalega er talað um 300 l sem lágmark fyrir einn óskar og ég er nokkuð sammála því.
Þetta eru fiskar sem sóða mikið og þurfa talsvert vatnsmagn og góðan hreinsibúnað.
óskarar verða líka stærri en 17cm.
Þegar þeir eru c.a komnir í þessa stærð (sem þinn er í núna)
þá hægist aðeins á vextinum.
En svo halda þeir áfram að vaxa í 30-35cm.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Ég veit að þeir verða þetta stórir. Mér var bara sagt að vegna þess að hann kjálkabrotnaði svo illa þegar hann var ungur þá yrði hann aldrei fullvaxta. Var að vona að það væri satt. Any thoughts?
vertu mjög dugleg í vatnsskiftum
þetta er ekkert einbýlishús hjá honum frekar svona lítil stúdíó íbúð
hann getur alveg orðið 35 cm í þessu búri og lifað ágætu lífi þannig lagað
ef þú passar vatnsskiftin
það má lengi þræta um hvaða stærð hentar hvaða fisk og í raun væri hægt að segja að öll búr séu of lítil miðað við náttúruna
öflug vatnsskifti verða til þess að þessi fiskur gæti haft það miklu betra í þrengslum heldur en margir fiskar í búrum þar sem vatnskifti eru léleg
Sammála Guðmundi, allt spurning um góðan dælubúnað og næg vatnaskipti. Mér finnst nú samt ekkert fallegt að sjá svona stóran fisk í þetta litlu búri þó hann gæti alveg lifað í því.
Nei ekkert voðalega fallegt. Hef bara ekki efni né pláss fyrir stærra akkúrat núna, kannski eftir ár... eða eitthvað. Ég geri stór vatnsskipti einu sinni í viku (ca 70%). Svo eru tetrur og fleiri smáfiskar með honum í búri sem sjá um að éta upp það sem hann spýtir frá sér. Svo það fer rosalega lítill matur til spillis.(allt geðveit útpælt svo að vatnið sé sem best) Já, svo ekki sé minnst á allar rækjurnar sem eru í búrinu líka. Þær hreinsa botninn á nóttunni.
Það er bara svo mikið bras að finna pössun því að hann hentar bara í stór smáfiskabúr og þess konar búr finnast nú ekki hvar sem er. Hvað þá með viljugum eiganda.
Ég kaupi stærsta "einbýlishús" í heimi (sem ég hef efni á) ef hann verður viljugur að bíða aðeins.