Aron the terrorist

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
krusi79
Posts: 59
Joined: 02 Jul 2008, 12:50
Location: RNB

Aron the terrorist

Post by krusi79 »

Langaði bara að deila þessu.

Kom heim í gær eftir að hafa verið viku í burtu og sá þá litla 250l samfélagsbúrið mitt og fannst eitthvað vanta í það.

Fyrir um 20 dögum síðan gaf vinur minn Aron mér archer fisk sem ég svo skírði auðvitað Aron.
Setti þennann pollrólega fisk í búrið mitt með hinum rólindis fiskunum mínum og fylgdist með hvernig honum yrði tekið. Allt gekk mjög vel nema hann var ekki farinn að borða alveg strax, tók um viku... en núna viku eftir að hann fór að borða er hann farinn að borða aðeins of mikið, þeas. 4 cardinal tetrur 2 SAE og hálfan sporð af SAE.

Held að 1 SAE sé of stór uppí Aron og hann verði látinn í friði en hinn er duglegur að fela sig núna með sinn lilta sporð.

Veit þetta var bara spurning um tíma, en skalinn var búinn að láta terurnar vera allann þann tíma sem ég hef átt þetta búr, þannig að ég tók sénsinn með Aron.
250l-Samfélagsbúr
25l-Humar búr
28l-Humar seiði
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Þessir fiskar eru víst þekktir fyrir að éta minni fiska en hann sjálfur, sem sé fiska sem komast upp í hann. Ganga samt með stærri fiskum held ég en ekki litlum eins og neon tetrum og þessháttar :).

Getur lesið reynslusögur hérna http://www.aquahobby.com/gallery/e_archer.php

Einhverjir að lenda í að þeir éti litla fiska :).
200L Green terror búr
User avatar
krusi79
Posts: 59
Joined: 02 Jul 2008, 12:50
Location: RNB

Post by krusi79 »

hehe já vissi af þessu með að þeir éti minni fiska en ég var alveg sáttur við að þeir yrðu næring fyrir hann, þannig að ég lét bara á það reyna.

en hvað verða SAE stórir?, finnst verra að hann sé að éta þá :s

Ætli fullvaxnir SAE geti lifað með honum?
250l-Samfélagsbúr
25l-Humar búr
28l-Humar seiði
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þeir ættu að vera í góðu lagi með honum..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply