Juwel 180l Vision samfélags búr.

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Væntanlega að tala um að taka kókflösku, skera toppinn af og snúa við... Fiskar rata illa út úr þannig gildrum. Svipað og humra, krabba og álagildrur.


Mér finnst best að veiða svona fiska bara þegar þeir eru "sofnaðir".. Þá er þetta venjulega lítið mál.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Kannski maður prófi þetta kókflöskudæmi. Þetta eru svo forvitnir skrattar að þeir verða sjálfsagt fyrstir að troða sér inn í flöskuna.

Er erfitt að finna þessa Purpurabarba? Ég hef ekki rekist á þá í búðunum hérna nýlega.
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Þeir virðast vera til hjá Tjörva, eru allaveganna á in stock listanum hjá honum.
http://verslun.tjorvar.is/index.php?cPath=165_314_348
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hann Stebbi hérna á spjallinu er held ég að rækta og selja purpurabaraba.
Einnig held ég að GG sé með eitthvað af ungfiskum.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Kíki á það....takk. :)
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

neibbs ég á bara cherrybarba núna
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Ég náði Tígrunum upp úr, en ég þurfti að taka mest allt úr búrinu til þess að ná þeim. Skildi eftir Valisneriuna og Amazon Sverðin, en Sverðin eru rétt að byrja að festa ræturnar. Reyndar losnuðu 2 sverðplöntur í látunum, þannig að ég þurfti að planta þeim upp á nýtt, en það er byrjað að myndast fínar rætur undir plöntunni, vonandi jafnar það sig.

Allt annað að fylgjast með fiskunum núna. Coryarnir eru útum allt búr að snuðra eftir mat, en áður húktu þeir alltaf í felum og rétt komu fram til að borða. :)

Ég bætti aðeins við Rasbora hópinn í staðinn. Ekkert nema hamingja í búrinu núna......fyrir utan smá innbyrðis bögg hjá Gúrömunum, en það er lítið við því að gera. :)

Nú bíð ég bara eftir vænum hóp af Sterbai Corydoras sem eru í pöntun, en það er flottasta Cory tegundin að mínu mati, svart doppóttir með appelsínugula ugga.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Corydoras Sterbai 10 stk eru komnar í búrið. Tjörvi pantaði þá fyrir mig og ég sótti þá í gærkvöldi. Hrikalega flottir....langflottasta tegundin að mínu mati. :)

Myndir fljótlega.
Post Reply