Ódýrar plöntur til sölu

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Ódýrar plöntur til sölu

Post by turtle »

Sæl öll sömul.

Er að grisja hjá mér og hef ákveðið að selja plönturnar sem þarf að grysja. Allur ágóði af sölunni fer svo í að betrumbæta búrið hjá mér. Verð með þetta til sölu annað kvöld eftir kl 21. Hafði hugsað mér að henda síðan restinni af því sem ekki fer á morgun.

Ég er staðsettur í Vesturbænum í Reykjavík. Sendið mér skilaboð og takið fram hvað það er sem þið viljið (númer hvað og hversu mikið). Tek það síðan til og verð tilbúinn með það. Læt vita heimilisfang og síma í skilaboðum. Konan mín er orðin mjög þreytt á að fá fiskaperra inn í stofu og þar af leiðandi verða plöntur bara afhentar við dyrakarminn :wink: Tek bara reiðufé. Lágmarkskaup eru 1000 kall. Bendi á Tropica síðuna til að skoða myndir og lesa sér til um plönturnar (http://www.tropica.com/plants/plant-list-a-z.aspx).

Þær plöntur sem til sölu eru:

1) Riccia fluitans. Rótarlaus flotplanta sem hægt er að binda niður á steina og greinar og myndar hún þá eins og grasflöt. Ætlaði að selja svo til fullan nestispoka á 500 kall.

Image

Image

2) Sagittaria subulata. Sjá mynd. Mjög fín bakgrunnsplanta sem vex hratt. Ætlað að selja 10 stk á 500 kall.

Image

3) Micranthemum umbrosum. Skemtileg planta sem líkist arfa og myndar stóra runna ef hún er ekki klippt. Tetrurnar hjá mér hrygna í þessa plöntu daglega hjá mér. Ætla að selja stórt knippi (mun stærra en það sem sést á myndinni) á 500 kall.

Image

4) Hemianthus micranthemoides. Svipuð og Micranthemum umbrosus og gildir það sama um hana. Stórt knippi 500 kall.

5) Vallisneria gigantea. Stór bakgrunnsplanta sem getur myndað yfir 3 metra löng blöð séu þau ekki klippt. Hentar mjög vel í búr fyrir afrískar síkliður. 500 kall stykkið.

6) Echinodorus bleheri. Amazon sverðplanta. Á örfáar litlar sverðplöntur. 500 kall stykkið.

7) Egeria densa. Get selt mikinn slatta af henni fyrir 500 kall. Get annars látið afleggjara fylgja frítt með öðru ef áhugi er fyrir því.

8) Bland í poka. Ég moka helling af ýmsum plöntum í poka (reyni að taka sýnishorn af flestu) og þið farið heim, sorterið og plantið :wink: Aðrar plöntur en taldar eru upp hér munu fylgja með.

Bestu kveðjur, Turtle.
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Það má geta þess að kallinn með sólgleraugun er númer átta :wink:
User avatar
Snædal
Posts: 202
Joined: 27 Apr 2009, 21:37
Location: Rvk

Post by Snædal »

Hélt ég hefði ýtt á ep takkann. Skilaboðin sem voru hér eru því í ep
turtle
Posts: 21
Joined: 02 Aug 2007, 12:52

Post by turtle »

Sæl öllsömul.

Eftir vanrækslu í sumar var ég rétt í þessu að þrífa fiskabúrið og grisja plöntur. Ætla sjá hvort ég geti selt eitthvað af gróðrinum. Allir ágóði fer í rekstur á búrinu;)

Það sem ég er með aflögu er heill hellingur af Micranthemum umbrosum (var að hugsa um að selja knippið á 500 kall), þrjár eða fjórar Vallisneria gigantea (500 kr stykkið), eitthvað af riccia fluitans (fylgir frítt með), sagitaria subulata og eitthvað fleira. Ég er líka til í að láta fólk hafa sýnishorn af hinu og þessu fyrir 500 kall.
Sendið póst. Þeir sem hafa keypt af mér áður og eru með númerið hjá mér geta hringt í mig beint.

bkv. Turtle
N0N4M3
Posts: 48
Joined: 21 Jan 2010, 17:20
Location: Kópavogur

Post by N0N4M3 »

*facepalm* Las bara fyrsta póstinn og taldi hann vera nýjann
Post Reply